„Það er full ástæða til þess að bæta símasambandið á algengum ferðamannastöðum á hálendinu,“ segir Hörður Magnússon, framkvæmdastjóri Ferðafélagsins Útivistar.
Hann segir verra símasamband á hálendinu vera mikið til umræðu hjá ferðamönnum og fólki í ferðaþjónustu. Hann vill ekki fullyrða um hvort lokun á 2G og 3G sendum gæti verið orsökin en hann segir hana ekki hafa verið til batnaðar.
Símasamband hafi ekki verið sérlega gott fyrir en nú sé tilfinningin að það hafi versnað.
Áður hafi yfirleitt verið hægt að fara upp á hól til að ná sambandi en það gangi ekki lengur. Hörður segir fulla ástæðu til að taka þetta alvarlega. Útivist hafi brugðist við með því að taka upp gervihnattasamband í gegnum Starlink-gervihnattakerfið.
„Við höfðum áhyggjur af því fyrir að símasamband væri ekki gott á stöðum á hálendi þar sem er mikil ferðamennska í stuttan tíma á sumrin og það er mikið öryggisatriði að hafa gott símasamband. Við höfum mikinn hug á því að það verði lagað á þeim stöðum,“ segir Hörður.
Sigurbjörn Óskar Guðmundsson, deildarstjóri innviða hjá Sýn, segist ekki hafa orðið var við að símasamband hafi versnað og telur lokunina á 2G og 3G sendum ekki valda verra símasambandi.
Ef fólk verður vart við sambandsleysi er það hvatt til að hafa samband við þjónustuver fjarskiptafyrirtækja.