Geir Gunnar Geirsson, forstjóri Stjörnugríss, er viss um að þeir sömu og brutust inn í svínabú fyrirtækisins á Kjalarnesi í maí hafi staðið að innbrotinu á Dalsbúi í Mosfellsdal í vikunni.
„Ég held að það megi ganga að því vísu, þótt maður sé ekki rannsóknarlögreglumaður,“ segir hann.
Innbrotið á loðdýrabúið í vikunni er það þriðja í nágrenni höfuðborgarsvæðisins á nokkrum vikum.
Geir bendir á að röð aðgerða sé svipuð í öllum tilfellum. Brotist er inn að nóttu til, skemmdarverk unnin og dýrum hleypt út.
„Það er ólíklegt að þetta séu nýir aðilar að verki. Þetta er allt á sama svæði.“
Enginn kallaður í skýrslutöku enn
Lögregla hefur ekki boðað neinn í skýrslutöku vegna innbrotanna á svínabú Stjörnugríss og Reykjabúið enn. Lögreglustöð 4 á höfuðborgarsvæðinu heldur utan um rannsókn málanna auk rannsóknar innbrotsins á Dalsbú.
Hildur Rún Björnsdóttir lögreglufulltrúi sagði í dag að það væri „ekki ólíklegt“ að innbrotin tengdust með einhverjum hætti. Innt eftir því hvort lögregla hefði eitthvað í höndunum sagðist hún ekki geta tjáð sig um yfirstandandi rannsóknir.
„Ég held þau hafi ekki neitt í höndunum, annars væru þeir búnir að handtaka einhvern og kalla til yfirheyrslu,“ segir Geir.
Þaulskipulagt innbrot
Þegar brotist var inn hjá Stjörnugrís benti allt til þess að innbrotið hefði verið þaulskipulagt, að sögn Geirs. Engin bílaumferð hafi verið við búið og eftirlitsmyndavélar á vegum úti námu því ekki spellvirkjana.
Geir telur að lögregla taki innbrotin alvarlega og vilji leysa þau. „En það hlýtur að vera erfitt ef það eru engar vísbendingar.“
„Vonandi kemst niðurstaða í þetta. Þessir aðilar þurfa að svara til saka fyrir það sem þeir hafa gert.“