Samtökin Drenglyndi hafa birt opið svar sitt til Gunnars Más Gunnarssonar, bæjarfulltrúa á Akureyri, þar sem farið er yfir svör hans við spurningum samtakanna um kynrænt sjálfræði, kynvitundarkennslu í skólum og samstarf Akureyrarbæjar við Samtökin ‘78.
Bréfið er undirritað af Ínu Steinke og Víði Orra Haukssyni fyrir hönd samtakanna og birtist eftir að Gunnar Már svaraði áður opinberlega spurningum frá Drenglyndi.
Í svarinu gagnrýna samtökin Gunnar fyrir að dansa í kringum skýrar og augljósar spurningar og þau segja að bæjarfulltrúar verði að geta tekið afstöðu til mála sem varði börn, skólastarf og réttindi kvenna.
Segja lögin hafa grafið undan réttindum kvenna
Stærsti hluti bréfsins snýr að lögum um kynrænt sjálfræði. Þar halda samtökin því fram að með lögunum hafi kynvitund verið gefið meira vægi en líffræðilegu kyni og að það hafi haft áhrif á réttindi og aðstöðu kvenna.
Þau nefna sérstaklega aðgengi að kvennaklefum, salernum, kvennafangelsum og úrræðum fyrir þolendur ofbeldis.
„Réttur karla á upplifun er æðri blygðunarsemi og friðhelgi ungra stúlkna,“ segir meðal annars í bréfinu.
Einnig segja þau að breytingar hafi orðið á orðalagi innan heilbrigðis- og stjórnsýslukerfisins þar sem hefðbundin orð á borð við mæður og konur hafi í auknum mæli verið skipt út fyrir hugtök á borð við meðgönguvernd, leghafa, fæðingarforeldri, fólk með PCOS, fólk með endó og ófrískt fólk.
Gagnrýna kennslu um kynvitund
Drenglyndi gagnrýnir jafnframt námsefni grunnskóla og umræðu um kynvitund í skólakerfinu.
Samtökin segja mikilvægt að börnum sé kennt að greina á milli hugmynda og veruleika og halda því fram að ákveðin hugmyndafræði hafi fengið fótfestu í skólastarfi án nægilegrar umræðu og án þess að gagnrýnin umræða hafi fengið að koma fram.
Þau gagnrýna sérstaklega orðalag eins og að börnum sé úthlutað kyni við fæðingu og segja að slíkt geti ruglað börn varðandi eigin líkama og sjálfsmynd.
„Námsefni barna á að vera rétt og satt,“ segir í bréfinu.
Vísa í Cass skýrsluna og sænska rannsókn
Í bréfinu gagnrýna samtökin einnig það sem þau kalla sjálfsvígsmýtur í umræðunni og segja hættulegt að tengja sjálfsvíg við eina orsök.
Þar vísa samtökin meðal annars í svokallaða Cass skýrslu í Bretlandi og sænska rannsókn um kynleiðréttingar.
Þau segja að ekki sé tölfræðilega marktækur munur á sjálfsvígstíðni ungmenna með kynama þegar leiðrétt sé fyrir öðrum geðrænum vanda, en halda því jafnframt fram að fólk sem fari í kynleiðréttingu sé samkvæmt sænskri rannsókn 19 sinnum líklegra til að fremja sjálfsmorð.
Einn fulltrúi baðst afsökunar
Umræðan hófst eftir að Drenglyndi fór fram á að Akureyrarbær endurnýjaði ekki fræðslusamning sinn við Samtökin ‘78.
Á fundi Fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar fyrr í vikunni kom fram að málið yrði ekki tekið fyrir fyrr en eftir sveitarstjórnarkosningar þar sem bæjarstjórn telur rétt að næsta stjórn taki svo stóra ákvörðun.
Þá vakti það einnig athygli þegar Jón Hjaltason bæjarfulltrúi sagðist sjá eftir því að hafa skrifað undir samninginn á sínum tíma. Hann sagði að hann hafi vonast eftir að samstarfið yrði til góðs en Jón segir að allt annað hafi komið á daginn og samstarfið hafi búið til fleiri vandamál en það leysti. Jón bað fulltrúa Drenglyndis afsökunar á þessu á fundinum.