Blaðamaður ræddi við Heimi en hann er enn staddur í London, þar sem hann hefur dvalið síðustu tíu dagana. Hann fór á fimm tónleika úti hjá stórstjörnunni Ariönu Grande en í júlí skellti hann sér á þrenna tónleika hjá henni í Boston.
„Þetta er síðasta tónleikaferðalagið hennar í langan tíma og hún er númer eitt hjá mér alltaf. Ég elska tónlistina hennar og svo er hún æðisleg persóna líka.“
Fyrir sumarið hafði hann séð Ariönu einu sinni á sviði árið 2019.
„Ég var því búinn að bíða spenntur eftir þessu í sjö ár. Mér finnst röddin hennar hafa þroskast rosalega mikið, hún nær auðvitað sturluðum nótum og þetta var svakalega flott show hjá henni.“
Grande skælbrosandi
Heimir segist seint verða þreyttur á tónleikum Ariönu.
„Í gærkvöldi fór ég með vinkonu minni sem var að sjá hana í fyrsta skiptið. Það var mjög gaman að upplifa það með henni og þetta er alltaf jafn skemmtilegt.
Svo tekur hún oft ýmislegt óvænt. Á fyrstu tónleikunum tók hún tvö ný lög sem hún hefur aldrei sungið áður á sviði. Á næstu tónleikum var ég með VIP standandi miða og þá kom Cynthia Erivo og allt gjörsamlega trylltist.“
@heimiringii 😭😭😭😭 #arianagrande #cynthiaerivo #arianator #eternalsunshinetour #wicked ♬ original sound - heimir
Cynthia og Ariana eru bestu vinkonur og leika saman í söngleikjamyndunum Wicked.
„Ég hef aldrei heyrt jafn sturluð viðbrögð á tónleikunum, fólk fagnaði svo ákaft að það heyrðist ekki í Aríönu syngja einu sinni.“
Ariana Grande hefur verið mikið í umræðunni þar sem fólk hefur áhyggjur af því hve grönn hún er orðin en hún tilkynnti á dögunum að eftir tónleikaferðalagið væri hún farin í pásu frá sviðsljósinu.
„Mér fannst hún líta út fyrir að vera mjög hamingjusöm á sviðinu, alltaf skælbrosandi. Fólk hefur verið að segja að hún sé ekki að gefa jafn mikið frá sér á sviði og áður en mér finnst það ekki vera þannig. Þegar hún var á tónleikaferðalagi árið 2019 var hún stöðugt að gráta eftir lög en það er ekki svoleiðis núna allavega,“ segir Heimir um uppáhalds tónlistarkonu sína.
Íbúðarkaup og smá pása
Á síðustu árum hefur Heimir stöðugt verið með einhverja tónleika bókaða, tekur öflugar vinnutarnir og ferðast svo.
„Það er að breytast svolítið núna, ég er ekki með neina tónleika bókaða. Ég var að kaupa mér íbúð og þarf aðeins að stoppa,“ segir Heimir kíminn og bætir við:
„Núna er ég líka búinn að sjá eiginlega alla sem mig langaði til að sjá og oft þá sömu. Ég get aðeins slakað á. Ég held þetta sé komið upp í sjötíu tónleika núna, allt á síðustu rúmu fjórum árum.“
Hann flýgur svo heim á morgun og hlakkar til að komast í rútínu.
„Þetta er búið að vera ótrúlega gaman en ég er líka spenntur að koma heim og slaka smá á. Ég átti meira að segja að vera úti til 2. september en ég stytti ferðina því mig langaði að koma heim.“