Heimildarmenn Wall Street Journal segja bandaríska embættismenn enn vera að ræða þessa ógn sín á milli en svo virðist sem ekki liggi fyrir hversu brýn hún var. Marco Rubio, utanríkisráðherra, var spurður út í þessa ógn í gærkvöldi og sagði hann að brugðist hefði verið við henni með því að færa fólk til.
Miðillinn The War Zone, sem fjallar sérstaklega um herafla Bandaríkjanna, sagði frá því í gær að öryggisgæsla hefði verið aukin á breskum herstöðvum sem Bandaríkjamenn hafa aðgengi að og það væri líklega vegna þess að upplýsingar hefðu borist yfirvöldum um yfirstandandi eða væntanlega ógn.
Þetta fylgir á hæla þess að í síðasta mánuði var B-1 sprengjuflugvélum flogið frá RAF Fairford, vegna einhvers konar uppákomu nærri herstöðinni sem hefur verið bendluð við Íran. Þá voru nokkrir menn handteknir við herstöðina og í Lundúnum en að minnsta kosti tveir þeirra hafa verið ákærðir á grundvelli þjóðaröryggislaga og er annar þeirra sakaður um að starfa fyrir írönsku leyniþjónustuna.
Sjá einnig: Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi
Samkvæmt frétt Sky News var eldsneytisflugvélunum flestum flogið til Spánar og Þýskalands. Osprey-flugvélunum var flogið á aðra breska herstöð.
BREAKING: Multiple US aircraft have been evacuated from an airbase in Suffolk, following an alleged threat from Iran, according to reports. Sky's @haynesdeborah says it appears at least nine tanker aircraft and several other aircraft were removed from RAF Mildenhall. https://t.co/KUWYuEh4Tg
— Sky News (@SkyNews) November 10, 2026
Undanfarnar vikur hafa borist fregnir af því að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi verið að íhuga nýjar og umfangsmiklar árásir á Íran. Trump sagði í gær að litlar líkur væru á slíku og að stríðið gegn Íran væri „hernaðarlega svo gott sem búið“.