Flugvél flaug á óþekktan fljúgandi hlut í um sex kílómetra fjarlægð frá flugvellinum í Leipzig í Þýskalandi seint í gærkvöld. Hún lenti heilu og höldnu skömmu síðar.
„Flugvélinni var ætlað að lenda í Leipzig en hún þurfti að hætta við lendinguna,“ sagði talsmaður innanríkisráðuneytis Þýskalands á blaðamannafundi. „Hún klessti svo á óþekktan hlut,“ sagði hann og bætti við að hún hefði lent í Hanover. Minni háttar skemmdir voru á nefi vélarinnar.
Starfsemi flugvallarins var stöðvuð og nokkrar flugvélar sem voru á leið til lendingar voru sendar annað. Starfsemin færðist í eðlilegt horf í morgun. Önnur flugbrautin er þó lokuð vegna rannsóknar lögreglu.
Fundu dróna sem var hugsanlega hlaðinn sprengiefni
Þýski miðillinn Bild segir að dróni með hvellhettu hafi fundist á Leipzig/Halle-flugvelli. Hann hafi hugsanlega verið hlaðinn sprengiefnum. Dróninn fannst nærri úkraínskri fraktflugvél af Antonov-gerð.
Þýska lögreglan sagði í morgun að sprengisveitardróni hefði verið notaður í aðgerðum lögreglu á flugvellinum í nótt. Talsmaður lögreglu segir almenningi ekki stafa nein hætta af drónanum.
Telja Rússa standa að baki drónaflugi
Drónar hafa reglulega flogið yfir flugvelli og herstöðvar í Þýskalandi og öðrum Evrópuríkjum á síðustu misserum.
Yfirvöld í Þýskalandi telja Rússa bera ábyrgð á mörgum þessara tilvika. Þau grunar að drónaflugið sé hluti af herferð skemmdarverka, njósna og upplýsingaóreiðu.