Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna til fundar í kvöld. Einkum er tekist á um hvíldartíma, vinnufyrirkomulag og svokallaða blautleigu.
Samninganefndir koma saman hjá ríkissáttasemjara klukkan sjö í kvöld en síðast var fundað á föstudag. Deilunni var vísað til ríkissáttasemjara 5. maí.
Ástráður Haraldsson segir fátt nýtt í stöðunni. Enn sé tekist á um sveigjanleika til að skipuleggja störf flugmanna og eigi og raða mönnum á skrá. Flugtímar, vaktir, frí og hvíldartímar flugmanna séu þar undir.
Þá staðfestir hann að deilan snúi einnig að svokölluðum blautleigusamningum þar sem flugfélag fær annað erlent flugfélag til að fljúga fyrir sig – sem er almennt ódýrara. Í dag er ákvæði í kjarasamningi FÍA sem kveður á um einkarétt flugmanna félagsins á öllu flugi Icelandair – og er flugfélaginu því ekki heimilt að gera blautleigusamninga.
Fjölda flugferða hefur verið aflýst frá því að deilan hófst þar sem ekki hefur tekist að manna áhöfn vegna deilunnar. Flugmenn eru ekki í verkfalli en Icelandair segir flugmenn hafa hætt að selja frídaga.
Formaður FÍA hefur hafnað því að félagið sé í óformlegum verkfallsaðgerðum. Það sé ekki flugmanna að fórna frídögum til að bjarga skipulagi flugfélagsins sem reiði sig á að geta keypt frídaga.