Flugi Icelandair til Zurich, sem fara átti klukkan 7:20 í morgun, var aflýst vegna þess að ekki tókst að manna áhöfn. Þetta staðfestir Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair.
Icelandair hefur þurft að aflýsa nærri 40 flugferðum vegna manneklu síðan kjaradeilu við flugmenn var vísað til ríkissáttasemjara.
Ásdís segir ekki hægt að segja til um hvort aflýsa þurfi fleiri flugferðum í dag, þó ekki sé útlit fyrir það eins og er.