Ólöglegur innflytjandi frá Erítreu hefur verið sakfelldur fyrir að nauðga karlmanni á eftirlaunum fyrir utan kirkju í norðurhluta London. Árásin stóð yfir í um 20 mínútur á meðan bílar, strætisvagn og gangandi vegfarendur fóru fram hjá án þess að átta sig á því sem var að gerast.
Bruke Desalagne dró fórnarlamb sitt úr strætóskýli og á grasflöt við St John’s Church.
Kona sem bjó í nágrenninu varð hins vegar vör við árásina úr eldhúsglugga sínum, tók hluta hennar upp á síma og hringdi á lögreglu.
Stöðvaði árásina þegar fólk gekk fram hjá
Atvikið átti sér stað um miðnætti 23. júlí á síðasta ári. Það náðist á öryggisvélum þegar Desalagne dró manninn, sem var nokkuð ölvaður, af bekknum og yfir á grasflötina.
Saksóknari sagði fyrir dómi að upptökurnar sýndu jafnframt hvernig Desalagne hætti því sem hann var að gera í hvert sinn sem fólk gekk nálægt vettvanginum.
Á meðan árásinni stóð fóru meðal annars bílar og tveggja hæða strætisvagn fram hjá skammt frá án þess að farþegar eða ökumenn yrðu þess varir hvað væri að gerast.
Lögregla kom á vettvang innan fimm mínútna frá því að tilkynning barst. Þá stóð Desalagne við kirkjuskiltið en fórnarlambið lá þar fyrir aftan.
Sagðist upphaflega hafa verið að hjálpa manninum
Desalagne hélt upphaflega fram við lögreglu að hann hefði aðeins verið að reyna að hjálpa manninum vegna þess hversu ölvaður hann væri.
Þegar honum voru hins vegar sýndar upptökur úr öryggismyndavél stöðvaði hann yfirheyrsluna til að ræða við lögmann sinn. Eftir það neitaði hann að svara frekari spurningum og gaf heldur ekki skýrslu við réttarhöldin.
Verjandi hans hélt því fram að ekki hefði verið hægt að sanna að um nauðgun væri að ræða og hvatti kviðdómendur til að sýkna skjólstæðing sinn.
Kviðdómurinn var rúmar tvær klukkustundir að komast að niðurstöðu og Desalagne var sakfelldur fyrir nauðgun.
Desalagne verður dæmdur til refsingar í haust.