53% þeirra sem taka afstöðu til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið ætla að segja já á móti 47% sem ætla að segja nei. Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar sem Maskína gerði fyrir DV. Afstaðan breytist lítið frá fyrri könnun sem DV birti 13. júní.
Þegar allir svarmöguleikar eru bornir saman þá sögðust 13,5% svarenda ekki vita hvað þeir ætluðu að kjósa og 3,8% vildu ekki svara. 43,8% allra svarenda hugðust segja já og 38,9% segja nei.
Lítill munur er á afstöðu karla og kvenna.
Þegar horft er til búsetu eru Reykvíkingar jákvæðastir í garð aðildarviðræðna, 61,4% þeirra ætla að segja já. Meirihluti íbúa á landsbyggðinni hyggst segja nei. Mest andstaða er á Austurlandi, þar sem 68,2% ætla að segja nei.
Mikill munur er á afstöðu ef litið er til stjórnmálaskoðana. 94,7% kjósenda Samfylkingarinnar og 95,8% kjósenda Viðreisnar ætla að segja já. Stuðningur meðal kjósenda þriðja ríkisstjórnarflokksins, Flokks fólksins, er talsvert minni. 53,3% þeirra eru fylgjandi frekari aðildarviðræðum.
91% kjósenda Miðflokksins ætlar að segja nei. Það ætla 86,6% kjósenda Sjálfstæðisflokksins að gera og 76% þeirra sem kjósa Framsóknarflokkinn.
Könnun Maskínu fór fram dagana 22.–29. júlí og voru svarendur 2.255. Þar af tóku 1.865 afstöðu.