Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins - Vísir
29.04.2026 17:27:10👁️ 0 lesið
Sá fjórði var handtekinn í síðustu viku. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að gæsluvarðhald yfir þeim síðastnefnda hafi verið framlengt til 5. maí á grundvelli rannsóknarhagsmuna og hið sama gildi um einn af hinum þremur.Hinum tveimur hafi sömuleiðis verið gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi en nú á grundvelli almannahagsmuna til 25. maí. Fjórmenningarnir eru sagðir vera íslenskir og á þrítugs-, fertugs- og sextugsaldri.
Lögðu hald á efnin um borð í skipinu
Fram hefur komið að tveir mannanna séu starfsmenn Eimskips og ekki áður komið við sögu lögreglu. Alls voru sex handteknir í aðgerðum lögreglu og Tollgæslu um miðjan mánuðinn en þrír síðar látnir lausir. Lögregla lagði hald á amfetamínbasann um borð í gámaflutningaskipi Eimskips í aðgerðum 13. apríl.
Amfetamínbasi er yfirleitt notaður til að framleiða amfetamín en ekki er hægt að áætla nákvæmlega hversu miklu magni fjórtán lítrar myndu skila án þess að vita styrkleika efnisins. Í Saltdreifaramálinu taldi lögregla að 40 lítrar af amfetamínbasa gætu skilað 170 kílóum til dreifingar. Talið er að haldlagning af þessari stærðargráðu muni hafa töluverð áhrif á fíkniefnamarkaðinn.