Fjölmiðlafólk sem ferðaðist með Donald Trump Bandaríkjaforseta og fylgdarliði í forsetaflugvélinni Air Force One frá Kína til Bandaríkjanna í gær var beðið um að afhenda síma sína þegar það gekk um borð.
Hópur fjölmiðlafólks fylgdi forsetanum á ráðstefnu um efnahagssamstarf Asíu- og Kyrrahafsríkja í Shenzhen í Kína og flaug með forsetaflugvélinni báðar leiðir.
Einn ónafngreindur blaðamaður sem starfar í Hvíta húsinu sagði að starfsmaður Hvíta hússins hefði safnað farsímunum frá fjölmiðlafólki þegar það kom um borð í Kína að ráðstefnu lokinni. Símarnir voru settir í svokallaðan Faraday-poka sem hindrar öll merki frá símanum, sem á að minnka hættu á eftirliti og gagnasöfnun.
Skýringin sem fjölmiðlafólkið fékk var að þetta væri nauðsynleg öryggisráðstöfun til að koma í veg fyrir hugsanlegar njósnatilraunir. Aðstoðarmaður Bandaríkjaforseta safnaði einnig saman símum sem starfsfólk Hvíta hússins notaði tímabundið á meðan á heimsókn forsetans stóð í Kína. Gögnum verður eytt af þeim símum áður en þeir verða eyðilagðir.
Margir blaðamenn og ljósmyndarar höfðu kosið að skilja vinnu- og persónulega síma sína, fartölvur og snjallúr eftir um borð í flugvélinni í Faraday-pokum á meðan á vinnuferðinni stóð í Kína. Þeir fengu að nota þau tæki á heimferð sinni til Bandaríkjanna.
Þessar öryggisráðstafanir þykja óvenjulegar en fjölmiðlafólkið fékk síma sína afhenta þegar flugvél Bandaríkjaforseta lenti í Bandaríkjunum.