Sameinuðu þjóðirnar vara við að fjöldi jemenskra flóttamanna sem flýja yfir Rauðahafið til Djíbútí gæti tekið stökk frá 3.000 til 10.000 á næstu mánuðum.
Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna er þegar farin að búa sig undir þennan aukna fjölda. Stofnunin bendir enn fremur á að fjöldi þeirra Jemena sem eru á hrakhólum vegna stríðsins gæti aukist úr 130 þúsund í 230 þúsund á næstu mánuðum.