Yfirvöld í Kósovó segja að fjöldagröf hafi fundist í Zubin Potok í norðurhluta landsins. Þar hafa nú þegar fundist líkamsleifar 11 einstaklinga. Uppgröftur hófst í síðustu viku og hefur leitarsvæðið verið stækkað en yfirvöld telja að allt að 23 einstaklingar gætu verið grafnir þar.
Grunur leikur á að fjöldagröfin sé frá tímum Kósovóstríðsins milli hers Serbíu og Svartfjallalands og frelsishers Kósovó-Albana seint á 10. áratugnum. 13.000 voru drepnir í átökunum og 4.000 var saknað þegar stríðinu lauk. Margir þeirra sem saknað var fundust síðar í fjöldagröfum en enn er 1.600 manns saknað.
Settur forsætisráðherra Kósovó, Albin Kurti, sagði á laugardaginn að líkamsleifarnar væru mjög líklega af 23 Albönum sem voru rændir og teknir af lífi vorið 1999.
Lífsýni verða tekin úr líkamsleifunum og send til rannsóknar en það gæti tekið marga mánuði að bera kennsl á líkamsleifarnar.
Þrír menn voru handteknir í nágrenninu nýverið vegna gruns um stríðsglæpi.