Tryggingamiðlunin Tryggingar og ráðgjöf birti rangar og misvísandi upplýsingar á vefsíðu sinni, í upplýsingaskjölum til viðskiptavina og á umboðum viðskiptavina. Þetta er niðurstaða Fjármálaeftirlitsins.
Félagið hefur gert sátt við Fjármálaeftirlitið sem felur í sér sektargreiðslu að fjárhæð 35 milljónir.
„Með undirritun sáttarinnar hefur félagið gengist við því að hafa gerst brotlegt við tiltekin ákvæði laga nr. 62/2019 og nr. 30/2004. Félagið hefur þegar lokið úrbótum,“ segir í tilkynningu á vef Seðlabankans. Brotin varða ákvæði í lögum sem er ætlað að tryggja neytendum „öfluga og víðtæka vernd“.
„Markmið reglnanna er að neytendur fái réttar, sanngjarnar, skýrar og ekki villandi upplýsingar og geti tekið upplýsta ákvörðun um kaup á vátryggingu eða vátryggingatengdri fjárfestingarafurð sem hentar þörfum þeirra. Auknar kröfur eru gerðar þegar um er að ræða vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir, líkt og þær sem félagið dreifði frá NOVIS, vegna eðli og eiginleika slíkra afurða, meðal annars flækjustigs og áhættu.“
Ekki fyrsta sektin
Tryggingar og ráðgjöf var umboðsaðili slóvakíska tryggingafélagsins NOVIS. Fjármálaeftirlitið sektaði Tryggingar og ráðgjöf um 35 milljónir í nóvember 2020 fyrir að hafa veitt 45 viðskiptavinum sínum ranga ráðgjöf um eðlilega áhættu fjárfestinga. Tryggingar og ráðgjöf mótmæltu stjórnvaldssektinni og var hún lækkuð í 33 milljónir af héraðsdómi og síðar í níu milljónir af Landsrétti.
NOVIS var svipt starfsleyfi í Slóvakíu árið 2023. Um það leyti voru um fimm þúsund Íslendingar með virkan samning við fyrirtækið. Þeim fór ört fækkandi í kjölfarið en voru enn um þúsund undir lok síðasta árs, líkt og fram kom í umfjöllun Kveiks um fyrirtækið.
Í tilkynningu frá Tryggingum og ráðgjöf segir að málið varði starfsemi félagsins á árunum 2019–2023. Það hafi ekki dreift afurðum NOVIS frá því að starfsleyfi þess var afturkallað 2023.