Sólarorka og viðarkynding verða nýtt til að spara orku og gera rekstur Fjarðabyggðarhallarinnar ódýrari. Þetta er meðal fjölda innviðaverkefna sem fengu samtals yfir hálfan milljarð í styrk úr Fiskeldissjóði.
Fiskeldisfyrirtæki greiða gjöld í fiskeldissjóð sem úthlutar á hverju ári fé til sveitarfélaga þar sem eldi er stundað. Í ár voru 554 milljónir króna til úthlutunar.
Bolungarvík fékk tæpar 88 milljónir til að gera endurbætur á grunnskólanum, byggja upp nýtt íbúðahverfi og endurnýja götur og fráveitu.
Ísafjörður fékk tæpar 107 milljónir í nýja slökkvistöð.
Súðavík fékk rúmar 39 milljónir til að byggja líkamsræktarstöð við skólann og gera endurbætur á samkomuhúsi.
Vesturbyggð fékk tæpar 107 milljónir til að malbika og bæta skólalóð á Bíldudal.
Fyrir austan fékk Múlaþing einnig 107 milljónir til að endurnýja götur, gangstéttir og lagnir á Djúpavogi og hefja framkvæmdir við nýtt athafnasvæði. Rúmar 30 milljónir verða nýttar á Seyðisfirði í nýjan grunnskóla.
Fjarðabyggðarhöllin upphituð í fyrsta sinn
Í Fjarðabyggð verða 107 milljónir notaðar til að kaupa slökkvibíl og björgunarbúnað, fara í framkvæmdir á Stríðsárasafninu á Reyðarfirði og gera úrbætur í Fjarðarbyggðarhöllinni sem er stærsta íþróttamannvirki Austurlands. Þar verða rúmar 46 milljónir nýttar í að setja sólarsellur á stafnana til að knýja nýjan ljósabúnað og til að byggja kyndistöð sem brennir svokallaðar viðarperlur. Samið hefur verið við Alor og Tandraorku og verður Fjarðabyggðarhöllin því upphituð í fyrsta sinn næsta haust.