Finnski kappakstursmaðurinn Juha Miettinen lét lífið í sjö bíla árekstri sem varð á þýsku Nürburgring-brautinni í gær.
Björgunarlið brást skjótt við en tókst ekki að bjarga lífi Miettinens, sem var 66 ára og mjög reyndur kappakstursmaður. Hinir sex ökumennirnir slösuðust allir en enginn þeirra er í lífshættu. Slysið varð við upphitun fyrir sólarhringskappakstur á brautinni, sem álitin er einhver sú erfiðasta í heimi.