Fimm sprengjur úr nýjum heimildarþáttum um ásakanirnar gegn Michael Jackson - DV

Fimm sprengjur úr nýjum heimildarþáttum um ásakanirnar gegn Michael Jackson - DV

Fimm sprengjur úr nýjum heimildarþáttum um ásakanirnar gegn Michael Jackson - DV

Ein eftirminnilegustu réttarhöld 21. aldarinnar áttu sér stað árið 2005 en þar svaraði tónlistarmaðurinn Michael Jackson til saka vegna ásakana um barnaníð. Myndavélar voru ekki leyfðar í aðalmeðferðinni sem stóð yfir í tæpa fjóra mánuði. Þar báru meðal annars vitni meintur þolandi, fjölskylda hans og stjörnurnar Macaulay Culkin og Chris Tucker.

Nú eru komnir út heimildarþættir á Netflix sem nefnast Michael Jackson: The Verdict þar sem fjallað er um þær ásakanir að Jackson hafi misnotað 13 ára gamlan dreng, Gavin Arvizo, á búgarði sínum Neverland. Þar er nokkrum sprengjum varpað sem ekki er víst að lesendur hafi heyrt um áður.

„Þetta var mál sem fjallaði um einn þekktasta mann heimsins,“ segir fyrrum saksóknarinn Ron Zonen í þáttunum. „Hann var einstakur hvað varðaði hæfileika sína, færni og afrek. Og hann var einstakur í því hvernig hann níddist á börnum.“

Jackson hélt fram sakleysi sínu og fór svo að hann var sýknaður af öllum tíu liðum ákærunnar.

People hefur nú tekið saman nokkrar stærstu sprengjurnar sem varpað var í þáttunum.

1 Kviðdómendur dönsuðu við tónlist Jacksons á meðan á réttarhöldunum stóð

Áður en fyrsta vitnið var leitt fram í dómsmálinu, breski fjölmiðlamaðurinn Martin Bashir, ákvað ákæruvaldið að spila heimildarmyndina sem Bashir gerði um tónlistarmanninn, Living with Michael Jackson, í heild sinni fyrir kviðdóminn. Í myndinni má finna brot úr mörgum þekktustu lögum tónlistarmannsins og segir í heimildarþáttunum að kviðdómendur hafi augljóslega stigið dans á meðan þeir horfðu á myndina.

„Ég leit í kringum mig og allt fólkið inni í dómsalnum, kviðdómurinn, dómarinn og bara allir voru að dilla höfðum í takt við tónlistina,“ segir rithöfundurinn J. Randy Taraborrelli í þáttunum en hann skrifaði æviminningar Jacksons. Rannsóknarblaðamaðurinn Diane Dimond sem fjallaði um aðalmeðferðina segir að kviðdómurinn hafi „bókstaflega sveiflast til og frá í sætum sínum“.

2 Jackson mun hafa beðið lögmann sinn að grafa upp skít um Arvizo-fjölskylduna

Lögmaðurinn Brian Oxman starfaði fyrir fjölskyldu Jacksons en hann segir í þáttunum að Michael Jackson hafi beðið hann um að rannsaka bakgrunn þolandans, Gavin Arvizo, og fjölskyldu hans. Var markmiðið að finna þar eitthvað misjafnt sem gæti dregið úr trúverðugleika drengsins sem var að berjast við krabbamein þegar Jackson vingaðist við hann. Oxman komst að því að Gavin hafi verið gripinn við búðarhnupl úr verslun JCPenney árið 1998. Viðbrögð móður Gavins, Jant Arvizo, við þessu var að stefna versluninni og saka öryggisvörðinn um óþarfa valdbeitingu og ofbeldi. JCPenney ákvað að gera upp málið með dómsátt og fékk Arvizo-fjölskyldan um 152 þúsund Bandaríkjadali í bætur. Hluti bótanna var eyrnamerktur Gavin og systkinum hans en hluti rann til móður þeirra. Eitt helsta sönnunargagnið í málinu var áverkaskýrsla sem átti að sanna að öryggisvörðurinn hefði beitt hana ofbeldi. Við skýrslugjöf var hún spurð hvort að þáverandi eiginmaður hennar, David, hefði mögulega veitt henni þessa áverka en Janet sagði þá að maður hennar hefði aldrei beitt hana ofbeldi. Þetta fannst Oxman athyglisvert í ljósi þess að David var svo handtekinn árið 2001 fyrir heimilisofbeldi og lýsti Janet því þá að hann hefði beitt bæði hana og börnin ofbeldi í 17 ár.

Oxman bar þetta undir Janet í aðalmeðferðinni gegn Jackson og þurfti hún þá að játa að hún hefði logið í skýrslugjöfinni. Oxman taldi þetta benda til þess að Janet væri svikahrappur. Hún hefði logið til að fá bætur frá JCPenny og hún hefði reynt að leika það eftir til að fá peninga frá Jackson.

3 Bótasvik móðurinnar munu hafa gert út af við mál ákæruvaldsins

Upplýsingarnar sem Oxman gróf upp notaði hann til að rústa trúverðugleika móður Gavins, Janet Arvizo. Hann benti á að Janet hafi sjálf fengið um 32 þúsund Bandaríkjadali af sáttagreiðslunni frá JCPenny, eða um 4 milljónir króna á núvirði. Janet hafði þó ekki upplýst yfirvöld um þessa greiðslu þegar hún sótti um félagslegar bætur. Þar með hefði hún gerst sek um bótasvik. Einn kviðdómenda, Melissa Herard, lýsir því í heimildarþáttunum að þessi afhjúpun hafi haft mikil áhrif á kviðdóminn.

„Í mínum huga var þetta bara farsi. Hún var bara að leitast eftir peningagreiðslu.“

Janet játaði sök í bótasvikamáli sem var höfðað gegn henni árið 2006 og samþykkti að greiða sekt til ríkisins fyrir að hafa ekki upplýst ríkið um bótagreiðsluna frá JCPenny og þar með fengið bætur umfram það sem hún átti rétt á.

4 Jackson mun hafa gefið drengjum klúr gælunöfn

Fyrrum starfsmaður tónlistarmannsins, Vincent Amen, segir að Jackson hafi geymt myndir af Arvizo-fjölskyldunni sem voru teknar á heimili hans, Neverland. Á mynd af bróður Gavins, Star, hafði drengurinn sjálfur skrifað skilaboð til tónlistarmannsins og kvittað undir þau: Sonur þinn, Blástursopið (e. blowhole).

Amen segir að þetta hafi verið eitt af gælunöfnunum sem Jackson gaf drengjunum. Star lýsti því sjálfur í réttarhöldunum 2005 að hann hafi verið kallaður Blástursopið en að Gavin hafi til dæmis verið kallaður Eplahaus og Kúkur.

5 Jackson er sagður hafa horft á myndbönd af nöktum börnum með aðstoðarmanni sínum

Amen heldur því einnig fram í þáttunum að náinn vinur og aðstoðarmaður Jacksons – Frank Tyson sem var aðeins 5 ára þegar hann kynntist tónlistarmanninum – hafi beðið sig um að farga poka af barnaníðsefni þegar lögreglan gerði húsleit á Neverland-búgarðinum.

Á upptöku sem Amen tók má sjá að í umræddum poka var nektartímarit sem kallaðist Naturally en þar hafði einhver gert hring utan um myndbönd til að panta sem virtust sýna nakin börn. Þegar Amen spurði Tyson út í tímaritið og myndböndin sem búið var að merkja sagði Tyson að þetta hefði verið tímabil sem hann og Jackson gengu í gegnum.

Tyson neitaði að ræða við heimildarþættina en hann hefur ítrekað lýst því yfir að Jackson sé saklaus og að hann hafi aldrei séð nokkuð í fari tónlistarmannsins sem benti til þess að hann hefði verið haldinn barnagirnd.

#fimm #heimildarþáttum #nýjum #sprengjur #ásakanirnar

Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/fokus/2026/6/8/fimm-sprengjur-ur-nyjum-heimildarthattum-um-asakanirnar-gegn-michael-jackson/

📰 Aðrar fréttir

Deilt um uppsagnir og hagræðingu í Ráðhúsinu
📅 08.09.2026 👁️ 0
Deilt um uppsagnir og hagræðingu í Ráðhúsinu
Minni- og meirihluta borgarstjórnar greindi verulega á um skipulagsbreytingar og uppsagnir á borgarstjórnarfundi í dag. Búast má við að frekari hagræð...
Enn einn kaflinn skrifaður í stormasamri sögu Vatnsendalandsins - Neitað enn á ný um leyfi til að þétta byggðina
📅 08.09.2026 👁️ 0
Enn einn kaflinn skrifaður í stormasamri sögu Vatnsendalandsins - Neitað enn á ný um leyfi til að þétta byggðina
Segja má að skipulags- og umhverfisráð Kópavogsbæjar hafi skrifað enn einn kaflann í hina afar stormasömu sögu landareigninnar Vantsenda í gær. Meirih...
Skutu tugum eld­flauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Skutu tugum eld­flauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu - Vísir
Hútar stjórna stórum hluta Jemen, þar á meðal höfuðborginni Sana, en þeir eru studdir af klerkastjórninni í Íran. Sádar hafa stutt alþjóðlega viðurken...
Paul Adams: British-Israeli relations at lowest ebb in decades
📅 08.09.2026 👁️ 0
Paul Adams: British-Israeli relations at lowest ebb in decades
Israel's response to London's trade ban with Israeli settlements in the occupied West Bank shows how important this moment is.
Hafnaði 40 milljón dala þagnarsamningi Musks - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 0
Hafnaði 40 milljón dala þagnarsamningi Musks - Vísir
Myndin Musk var frumsýnd í dag á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Heimildarmyndaleikstjórinn Alex Gibney leikstýrir nærri fjögurra klukkustunda langri m...
Aukin grimmd Ísraela á Vesturbakkanum – Palestínumenn óttast um líf barna sinna
📅 08.09.2026 👁️ 0
Aukin grimmd Ísraela á Vesturbakkanum – Palestínumenn óttast um líf barna sinna
Landtökumenn á Vesturbakkanum hafa beitt Palestínumenn auknu ofbeldi á árinu og foreldrar óttast um líf barna sinna. Sameinuðu þjóðirnar segja að árás...
LIV Golf: Players free to leave after competition files for bankruptcy protection
📅 08.09.2026 👁️ 0
LIV Golf: Players free to leave after competition files for bankruptcy protection
LIV Golf intends to starts its new league early next year after filing for bankruptcy protection in the United States.
Telur að bæta þurfi kennslu inni í skólastofum
📅 08.09.2026 👁️ 0
Telur að bæta þurfi kennslu inni í skólastofum
Háskóli Íslands stóð fyrir málþingi í dag um niðurstöður PISA-könnunarinnar. Þar kom fram að efla þurfi kennaranám og beita skýrri og markvissri kenns...
„Það kostar peninga að afla peninga“ - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
„Það kostar peninga að afla peninga“ - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kom á blaðamannafundi valkyrjanna í morgun þar sem þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar var kynnt. Inga Sæland fór þar mikinn ...
Skiptar skoðanir á „mjög áhugaverðri hugmynd“ - „Líklega hámark vitleysunnar“
📅 08.09.2026 👁️ 1
Skiptar skoðanir á „mjög áhugaverðri hugmynd“ - „Líklega hámark vitleysunnar“
Hugmyndir um kláf upp á topp Esjunnar hafa lengi verið til skoðunar, en fengu innspýtingu á árinu 2024 þegar Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir óskaði eft...
Ríki og borg séu „tvíhöfða vaxta/verðbólguskrímsli“
📅 08.09.2026 👁️ 1
Ríki og borg séu „tvíhöfða vaxta/verðbólguskrímsli“
Már Wolfgang Mixa, hagfræðingur, segir Reykjavíkurborg og ríkið hegða sér eins og tvíhöfða vaxta og verðbólgu skrímsli. Raunstýrivextir hafi sjaldan v...
Kveikt í dagblaði og stungið inn um lúgu heimilis
📅 08.09.2026 👁️ 1
Kveikt í dagblaði og stungið inn um lúgu heimilis
„Þetta er mjög slæm tilfinning, að upplifa það að það sé verið að ráðast á heimili manns og með þessum hætti líka. Ráðherrar og fleiri hafa verið að l...
Farþegar kyrrsetts skip á Svalbarða fluttir heim til Rússlands
📅 08.09.2026 👁️ 1
Farþegar kyrrsetts skip á Svalbarða fluttir heim til Rússlands
Norsk yfirvöld hafa flutt 69 rússneska ríkisborgara aftur til síns heima en þeir hafa verið fastir á Svalbarða eftir að rússneskt skip sem þeir voru á...
Óttaðist um líf sitt í bílakjallaranum
📅 08.09.2026 👁️ 1
Óttaðist um líf sitt í bílakjallaranum
Brotaþoli í Höfðatorgsmálinu segist hafa óttast um líf sitt aðfaranótt 17. mars. Þrír menn eru ákærðir fyrir manndrápstilraun gegn honum með því að ha...
South Park verður South America - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
South Park verður South America - Vísir
Þá hefur Trump einnig gefið til kynna að hann vilji breyta nafni ríkisins Nýja-Mexíkó yfir í Nýja-Ameríka. Sjá einnig: Nafna­breytingaæði Trumps heldu...
Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp - Vísir
Sunna Sæmundsdóttir og Elísabet Inga Sigurðardóttir ræddu við Eirík Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, um komandi þingvetu...
Abuse of RNLI volunteers 'wholly unacceptable', chief says
📅 08.09.2026 👁️ 0
Abuse of RNLI volunteers 'wholly unacceptable', chief says
Peter Sparkes says there has been "deliberate misinformation" spread about the charity.
Vänsterpartiet í Svíþjóð í vanda vegna Hamas-málsins
📅 08.09.2026 👁️ 1
Vänsterpartiet í Svíþjóð í vanda vegna Hamas-málsins
Vänsterpartiet í Svíþjóð í vanda vegna Hamas-málsins Fréttin8. september 2026Aðsend grein, Erlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifa...
Þetta eru málin sem ríkisstjórnin setur í forgang
📅 08.09.2026 👁️ 1
Þetta eru málin sem ríkisstjórnin setur í forgang
159 mál eru á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Fjármála- og efnahagsráðherra er með flest eða 26 en forsætisráðherra og utanríkisráðherra fæst eða 7 h...
Kveðst hafa verið að reyna að stöðva átökin og verið með tannbursta meðferðis
📅 08.09.2026 👁️ 1
Kveðst hafa verið að reyna að stöðva átökin og verið með tannbursta meðferðis
Maðurinn sem er ákærður fyrir að stinga mann í bílakjallaranum við Höfðatorg aðfaranótt 17. mars segist hafa verið að reyna að stöðva átök milli tvegg...
Tæknibilun hefur áhrif á flug í Bretlandi og á Írlandi
📅 08.09.2026 👁️ 1
Tæknibilun hefur áhrif á flug í Bretlandi og á Írlandi
Flugsamgöngur á Bretlandi og Írlandi hafa farið verulega úr skorðum í dag eftir að tæknivandamál kom upp í flugumsjónarkerfinu NATS.Mestar voru trufla...
„Við þurfum að hafa metnað sem samfélag fyrir menntun barnanna okkar“
📅 08.09.2026 👁️ 1
„Við þurfum að hafa metnað sem samfélag fyrir menntun barnanna okkar“
Helsta áskorunin í íslensku skólakerfi er agaleysi, hlutfall innflytjenda, skortur á námsgögnum, afnám samræmdra prófa, óáhugaverðar bækur, skóli án a...
Þórunn Erna er sorgmædd og reið: „Já ég er reið“
📅 08.09.2026 👁️ 1
Þórunn Erna er sorgmædd og reið: „Já ég er reið“
Leikkonan Þórunn Erna Clausen segir að hún sé sorgmædd og reið eftir að hafa kynnt sér niðurstöður PISA könnunarinnar og biðlar til þjóðarinnar um hæt...
Þjófnaðir, húsbrot og íkveikja í Reykjavík
📅 08.09.2026 👁️ 1
Þjófnaðir, húsbrot og íkveikja í Reykjavík
Það var nóg um að vera í dag hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en meðal verkefna sem komu til kasta hennar voru þjófnaðir, húsbrot og íkveikja.Þett...
Sam­mála um að vilja binda enda á stríðið sem fyrst - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Sam­mála um að vilja binda enda á stríðið sem fyrst - Vísir
Forsetarnir töluðu saman í síma í dag en símtalið mun hafa staðið yfir í rúma klukkustund, samkvæmt Júrí Úsjakóv, aðstoðarmanni og ráðgjafa Pútíns. Ús...
Töluðu saman í klukku­tíma - Vísir

Glastonbury confirms ticket sale dates - and highest ever price
📅 08.09.2026 👁️ 1
Glastonbury confirms ticket sale dates - and highest ever price
The festival will return in June after taking a fallow year, but tickets have topped £400 for the first time.
Íkveikja í Mið­borginni - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Íkveikja í Mið­borginni - Vísir
Er þetta meðal þeirra 65 mála sem koma fram í yfirliti lögreglu frá því klukkan 5 í morgun til 17 síðdegis í dag. Alls séu sex vistaðir í fangageymslu...
Pólverjar á Íslandi hóta eigin Nóbelshöfundi
📅 08.09.2026 👁️ 1
Pólverjar á Íslandi hóta eigin Nóbelshöfundi
Olga Tokarczuk, handhafi Nóbelsverðlaunanna í bókmenntum, kemur til Íslands í þessari viku til að taka við Alþjóðlegu bókmenntaverðlaunum Halldórs Lax...
Alvarlegt þegar valdamikið fólk gantast með fullveldi Íslands
📅 08.09.2026 👁️ 1
Alvarlegt þegar valdamikið fólk gantast með fullveldi Íslands
Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir fulla ástæðu til að sýna stillingu en taka því alvarlega þegar valdamikið fólk gantast ...
Vill ítarlega samanburðarrannsókn á menntakerfinu
📅 08.09.2026 👁️ 1
Vill ítarlega samanburðarrannsókn á menntakerfinu
Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi menntamálaráðherra, telur nauðsynlegt að ráðast í róttækar breytingar í menntakerfinu...
Rukka meira fyrir aksturinn og sér­stak­lega fyrir veginn - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Rukka meira fyrir aksturinn og sér­stak­lega fyrir veginn - Vísir
Þessi lagarök voru sett fram í greinargerð frumvarpsins um innviðafélagið fyrr á árinu. Þar segja stjórnvöld að bann vegalaga við samtímis innheimtu v...
UK announces sanctions on West Bank settlements prompting furious Israeli response
📅 08.09.2026 👁️ 1
UK announces sanctions on West Bank settlements prompting furious Israeli response
Britain's foreign secretary accuses settlers of carrying out the "ethnic cleansing" of Palestinians, as Israel responds by shutting the UK consulate i...
Playa Blanca beach closed after sewage spill in Lanzarote
📅 08.09.2026 👁️ 1
Playa Blanca beach closed after sewage spill in Lanzarote
A beach in one of Lanzarote's busiest tourist resorts has been temporarily closed to swimmers after sewage was discharged into the water. Yaiza Counci...
Bieber-hjónin í ástríðufullri myndatöku - Þetta er þeirra uppáhalds
📅 08.09.2026 👁️ 1
Bieber-hjónin í ástríðufullri myndatöku - Þetta er þeirra uppáhalds
Hjónin Justin Bieber og Hailey Bieber virtust ástfangnari en nokkru sinni fyrr þí ástríðufullri og náinni myndatöku í rúminu. Parið kysstist ákaft á m...
Svarthöfði skrifar: Guðlaugur Þór fúll á móti – kannski bara öfundssjúkur?
📅 08.09.2026 👁️ 1
Svarthöfði skrifar: Guðlaugur Þór fúll á móti – kannski bara öfundssjúkur?
Guðlaugur Þór Þórðarson hefur verið miður sín og heillum horfinn frá því kjósendur höfnuðu síðustu ríkisstjórn með afgerandi hætti. Á einni nóttu brey...
New scheme helps young people with rental deposits in Fuerteventura
📅 08.09.2026 👁️ 1
New scheme helps young people with rental deposits in Fuerteventura
Young people in Puerto del Rosario can now apply for financial help towards the deposit on a rented home, under a new scheme aimed at making it easier...
Þjóðin eigi náttúrupassa skilið - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Þjóðin eigi náttúrupassa skilið - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kom á blaðamannafundi formanna ríkisstjórnarflokkanna þar sem þingmál vetrarins voru kynnt. Eitt af málum sem kynnt hafa ...
„2010 árgangurinn getur gert miklu betur“
📅 08.09.2026 👁️ 1
„2010 árgangurinn getur gert miklu betur“
Frammistaða íslenskra grunnskólanemenda í PISA-könnunum hefur aldrei verið verri en í fyrra. Drengir hafa um árabil verið undir meðaltali í lesskilnin...
„Það var enginn að taka þessu alvarlega“

Samþykkja undirbúningsframkvæmdir fyrir Fljótagöng
📅 08.09.2026 👁️ 1
Samþykkja undirbúningsframkvæmdir fyrir Fljótagöng
Bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur samþykkt að hefja undirbúningsframkvæmdir vegna Fljótaganga. Málið verður formlega tekið upp í bæjarráði á fimmtudag.Í...
„Við getum verið að fara inn í al­veg ís­kaldan vetur“ - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
„Við getum verið að fara inn í al­veg ís­kaldan vetur“ - Vísir
Guðrún telur þingveturinn verða áhugaverðan. Ríkisstjórnin komi löskuð á þingið og niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi viðræður við ...
Prince George attends first day at Eton College
📅 08.09.2026 👁️ 1
Prince George attends first day at Eton College
The 13 year old was dropped off at the all-boys boarding school by his parents, Prince William and Princess Catherine of Wales.
Donald Trump shares misleading video of King Charles and fainting worker
📅 08.09.2026 👁️ 1
Donald Trump shares misleading video of King Charles and fainting worker
The president shares a misleading video which appears to show Charles shrugging and walking away from a man who fainted during a royal visit.
British widow faces deportation from Sweden after 22 years
📅 08.09.2026 👁️ 1
British widow faces deportation from Sweden after 22 years
A 78-year-old British woman is facing deportation for failing to fill out a Brexit residence application on time.
Á­varp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Á­varp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ - Vísir
„Við höfum vegið og metið kosti og galla ólíkra leiða og tekið afstöðu. Þannig á það að vera í lýðræðissamfélagi. Þótt mjótt hafi verið á munum er nið...
Móðgun í garð ráðherra „kannski að bera árangur“
📅 08.09.2026 👁️ 1
Móðgun í garð ráðherra „kannski að bera árangur“
Gunnar Helgason rithöfundur fagnar því að íslensk stjórnvöld ætli að verja 150 milljónum króna til eflingar íslenskrar tungu. Hann furðar sig á því hv...
Three-year jail sentence upheld for violent robbery of tourists in Veronicas
📅 08.09.2026 👁️ 1
Three-year jail sentence upheld for violent robbery of tourists in Veronicas
A man convicted of violently robbing a couple of tourists in Las Verónicas in the south of Tenerife has had his three-year prison sentence upheld on a...
Iceland summons US ambassador over Trump's stars and stripes map
📅 08.09.2026 👁️ 1
Iceland summons US ambassador over Trump's stars and stripes map
Trump's territorial ambitions have repeatedly strained relations with neighbouring countries.
Five injured including two children after car overturns in south Tenerife
📅 08.09.2026 👁️ 1
Five injured including two children after car overturns in south Tenerife
Five people have been injured after the car they were travelling in left the road and overturned on the TF-65 in San Miguel de Abona, in the south of ...