Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar tvö mál er varða stórfellt brot á lögum um ávana- og fíkniefni.
Aðfaranótt 29. júlí stöðvaði tollgæslan á Keflavíkurflugvelli þrjá kólumbíska ríkisborgara sem komu hingað til lands frá Spáni. Við leit í farangri þeirra fundust pakkningar sem innihéldu 2,4 kíló af kókaíni.
Hin grunuðu voru úrskurðuð í gæsluvarðhald til 5. ágúst. Eftir að lögreglustjórinn á Suðurnesjum fór fram á framlengingu gæsluvarðhalds úrskurðaði Héraðsdómur hin grunuðu í gæsluvarðhald til 12. ágúst.
Handtóku tvo Kólumbíumenn til viðbótar degi síðar
Degi eftir að Kólumbíumennirnir komu til landsins stöðvaði tollgæslan tvo ferðamenn sem einnig komu frá Spáni. Við leit í farangri þeirra fundust pakkningar sem innihéldu 1,7 kíló af kókaíni.
„Pakkningarnar reyndust vera sams konar og þær sem lagt var hald á deginum áður í fórum þremenninganna. Hin grunuðu sem einnig eru kólumbískir ríkisborgarar voru úrskurðuð í gæsluvarðhald til dagsins í dag 6. ágúst og mun lögreglustjórinn á Suðurnesjum leggja fram kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Lögreglan vinnur að því að upplýsa um tengsl málanna. Hún veitir ekki frekari upplýsingar á þessu stigi málsins.
Líkt og fréttastofa greindi frá á dögunum lýstu ættingjar eftir þriggja manna kólumbískri fjölskyldu sem ekkert hafði spurst til eftir komuna til landsins kvöldið 28. júlí. Fólkið skilaði sér ekki á hótelið sem það ætlaði að gista á og ítrekaðar tilraunir til að hafa samband við það höfðu ekki borið árangur. Í ljós kom að fólkið hafði verið handtekið vegna gruns um innflutning fíkniefna.