Skoski knattspyrnustjórinn fyrrverandi Sir Alex Ferguson skaut föstum skotum að Arsenal eftir úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Búdapest í Ungverjalandi á laugardaginn.
Það er franski miðillinn L'Equipe sem greinir frá þessu en Ferguson, sem er 84 ára gamall, sendi Nasser Al-Khelaifi, forseta París SG, skilaboð eftir sigur franska liðsins.
París SG fagnaði sigri í vítaspyrnukeppni, 4:3, en staðan að loknum venjulegum leiktíma var 1:1.
Erfitt kvöld í Búdapest
„Til hamingju með sigurinn, þetta var erfitt kvöld fyrir ykkur,“ skrifaði Ferguson í skilaboðum sínum til Al-Khelaifi.
„Þið voru að spila gegn leiðinlegu liði sem gerði ekkert annað en að verjast. Njóttu sigursins, þú átt það skilið,“ bætti Ferguson svo við.
Arsenal var einungis 25 prósent með boltann í leiknum og átti eina marktilraun á markið allan leikinn, sem endaði í markinu.