Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð til að aðstoða lögreglu við leitina um hádegisbil en þetta staðfestir Auðunn Kristinsson aðgerðarstjóri Landhelgisgæslunnra. Um þrír tímar liðu frá því að leit hófst og þar til maðurinn kom í leitirnar.
Margrét Gunnarsdóttir, staðgengill upplýsingafulltrúa Landsbjargar, staðfesti í samtali við blaðamann Vísis að allar björgunarsveitir frá höfuðborgarsvæðinu og að Höfn í Hornafirði hafi verið kallaðar út.