Knattspyrnumarkvörðurinn þekkti Guillermo Ochoa er á leiðinni á sitt sjötta heimsmeistaramót með mexíkóska landsliðinu.
Ochoa, sem er fertugur, verður því eini leikmaðurinn ásamt Lionel Messi og Cristiano Ronaldo til að hafa farið á sex heimsmeistaramót.
Ochoa er aðdáendum HM kunnugur en hann var frábær í marki Mexíkó á HM í Brasilíu 2014.
Ochoa á alls 152 landsleiki að baki fyrir Mexíkó en hefur ekki verið aðalmarkvörður liðsins síðustu ár.
Mexíkó er á meðal gestgjafa á mótinu ásamt Bandaríkjunum og Kanada og leikur sína leiki í riðlakeppninni á heimavelli.
Mexíkó spilar opnunarleikinn gegn Suður-Afríku þann 11. júní en ásamt þjóðunum tveimur eru Suður-Kórea og Tékkland einnig í A-riðli mótsins.