Abdul El-Sayed, vinstri sinnaður demókrati ættaður frá Egyptalandi, sigraði í prófkjöri Demókrataflokksins í Michigan í gær. Hann verður því frambjóðandi flokksins til öldungadeildar í þingkosningunum í Bandaríkjunum í nóvember. El-Sayed sigraði miðjukonuna Haley Stevens sem naut stuðnings margra háttsettra innan flokksins.
El-Sayed fæddist í Detroit og á egypskan föður og bandaríska móður. Hann er faraldsfræðingur og varð síðar forstöðumaður lýðheilsu í Wayne-sýslu í Michigan. Hann nýtur stuðnings öldungadeildarþingmannsins Bernie Sanders og borgarstjóra New York-borgar, Zohran Mamdani.
Til að tryggja sér sæti í öldungadeildinni þarf El-Sayed að sigra Mike Rogers í þingkosningunum sem verða í Bandaríkjunum í nóvember. Rogers er tilnefndur fyrir Repúblikanaflokkinn og nýtur stuðnings Donalds Trumps Bandaríkjaforseta.
Þarf að ná til kjósenda beggja flokka
Michigan er svokallað sveifluríki en fylgi kjósenda sveiflast milli Repúblikana og Demókrata. El-Sayed þarf að vinna fylgi kjósenda sem eru óánægðir með síðari forsetatíð Trumps.
Hann berst fyrir heilbrigðisþjónustu fyrir alla og vill færa pening úr pólitíkinni og í vasa kjósenda eins og hann orðar það. Repúblikanar hafa kallað El-Sayed öfgamann og gert mikið úr uppruna hans og múslimskri sjálfsmynd.
Bandaríkjaforseti gerði lítið úr sigri El-Sayed í prófkjörinu í færslu á Truth Social í gær og sagði að þetta væru frábærar fréttir fyrir Repúblikanaflokkinn. Trump kallaði hann glataðan „kommúnista sem hatar gyðinga og Ísrael“.