Enginn stóru flokkanna í Bretlandi býður fram í aukakosningum í Clacton-kjördæmi á Englandi í dag því þeir telja afsögn og framboð Farage sýndarmennsku. Hann hafi viljað stöðva rannsókn þingnefndar á fimm milljóna punda gjöf auðkýfings sem Farage tilkynnti ekki í hagsmunaskrá.
Helsti keppinauturinn grínisti
Helsti keppinautur Farage er Count Binface, Fötufés greifi. Hann er grínisti að nafni Jon Harvey og kemur ætíð fram í búningi með hjálm í líki ruslatunnu á höfðinu. Count Binface hefur verið nefndur Fötufés, Ruslgrímur, Tunnuhaus og Tunnufés í íslenskum fjölmiðlum. Harvey bauð sig fyrst fram í þingkosningum 2017, undir nafninu Lord Buckethead, Fötuhaus lávarður. Þá bauð hann sig fram í kjördæmi Theresu May, þáverandi forsætisráðherra.
Bauð sig fram gegn Boris Johnson 2019
Jon Harvey bauð sig fram gegn Boris Johnson, þáverandi forsætisráðherra, í þingkosningum í desember 2019 og þá undir Fötufés-nafninu. Síðast var hann í framboði í Makerfield-aukakosningunum í júní þegar Andy Burnham var kjörinn en hann varð svo forsætisráðherra í júlí. Fötufésið beið ekki boðanna þegar Nigel Farage efndi til aukakosninga í Clacton með afsögn sinni. Framboðið hefur vakið meiri athygli en nokkru sinni fyrr og Fötufés kom í viðtal í þættinum The Rest is Politics, Leading. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands, var gestur í sama þætti fyrr í sumar.
Vitnaði í Hómer á grísku
Fötufés greifi ræddi meðal annars við Campell og Stewart um kvikmyndina um Ódysseifskviðu og vitnaði í kviðu Hómers á grísku. Hann sagði einnig að hann myndi ekki vinna kosningarnar en Nigel Farage myndi samt tapa, siðferðilega gæti hann ekki unnið. Farage gæti aðeins státað af að hafa borið sigurorð af ruslafötu.
Umfjöllun um sólmyrkva og reiðhjólahjálmar í Danmörku
Bogi Ágústsson, Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu í upphafi Heimsgluggans um almyrkva á sólu og umfjöllun erlendra fjölmiðla og við heyrðum meðal annars í Martin Stew, fréttamanni ITV-sjónvarpsstöðvarinnar bresku, sem sendi beint frá Perlunni í Reykjavík. Í lokin var fjallað um notkun reiðhjólahjálma í Danmörku þar sem reynt er að fá hjólreiðafólk til að nota hjálma meðal annars með því að benda á að heilinn sé mikilvægari en hárgreiðsla og að fólk eigi að passa upp á klókan heila.