Dómari hefur veitt fjölskyldu Kardashian-Jenner langtíma nálgunarbann gegn manni sem sakaður er um að hafa heimsótt heimili Kylie Jenner ítrekað.Árið 2021 var maður að nafni Kyle Robert DeWick handtekinn fyrir að hafa farið inn á heimili Kylie Jenner. DeWick hafði áður verið gefið að sök að hafa farið í fjölda óvelkominna heimsókna til Kylie sem er sú yngsta af systkinunum í Kardashian -Jenner fjölskyldunni.Greint er frá því að hann hafi reynt að nýju að „gerast náinn“ fjölskyldunni undanfarna mánuði.
Fá langtíma nálgunarbann á eltihrelli „heltekinn“ af einni þeirra