Mávarnir eru mættir aftur við pylsuvagn Bæjarins Beztu í miðbænum og Baldur Ingi Halldórsson, framkvæmdastjóri pylsusölunnar vinsælu, segir að túristar hafi stundum kvartað undan þeim.
„Mávurinn er mjög klókur í þessu og fólk lendir stundum í því að hann hrifsi pylsuna beint úr höndunum á því. Í byrjun sumars sást lítið til mávanna en nú eru þeir komnir,“ segir hann í samtali við mbl.is.
Að sögn Baldurs er óskrifuð regla að í svona atvikum fái maður gefins pylsu. „Þú ættir að fá gefins pylsu ef mávurinn stelur henni,“ segir hann.
Vilja ekki grípa inn í svona mál
Baldur segist þó sjálfur ekki geta gert neitt í þessu máli.
„Það er ábyggilega hægt að gera eitthvað, en ég held að yfirvöld vilji einfaldlega ekki grípa inn í svona vargamál,“ segir hann.
„Mér finnst skrýtið að leyfa varginum að vaða svona um samfélagið.“
