Eva Gregersen: „dönsk blaðamannastétt er komin úr takti við skoðanir almennings“

Í grein Berlingske þann 24. júlí skrifar Eva Gregersen um hvað dönsk blaðamannastétt er komin úr takti við skoðanir almennings, og litar fréttirnar af fyrirfram mótuðum skoðunum og hlutdrægni. Á meðan 52% Dana álíti innflytjendastrauminn vera vandamál, þá gildi það bara um 22% blaðamannastéttarinnir. Blaðamennirnir lofsyngi alla útlendinga, sama hvaðan þeir koma og á hvað þeir trúa á.
Í greininni spyr Eva:
„Hverjir eru umsækjendurnir sem vilja verða samlandar okkar? Eru þeir góðir frjálslyndir demókratar sem skilja ekki aðeins hvernig á að laga sig að, heldur einnig hvernig á að meta og vernda grundvallarreglur samfélags okkar? Eða eru þeir tákratar sem krefjast kynjaaðskilnaðar, bænaherbergja og banns við háðsádeilu, en vilja samt sem áður að allur heimurinn verði íslamvæddur, eins og allt of margir sem hafa fengið ríkisborgararétt síðustu 40 árin?“
Það er álitið að í Danmörku búi rúmlega 6.000 Gyðingar. Þeir hafa verið þar í yfir 400 ár. Margir komu í boði Christian IV um 1600, en kóngurinn vildi fá þá til að hressa upp á danskt fjármála- og viðskiptalíf.
En múslimarnir? Þeir eru nú um 320.000, eða rúm 5% dönsku þjóðarinnar, og fer ört fjölgandi. Megnið af þeim kom frá MENAPT löndunum um og eftir 1970
Í Svíþjóð búa nú yfir 1.000.000 múslimar. Gyðingarnir þar eru um 15.000. Daniel Leviathan, fræðimaður við háskólann í Lundi, sér fyrir sér að eftir 50 ár verði ekki einn einasti Gyðingur eftir í Svíþjóð.
Greinina í heild má lesa hér.