ESB vill fyrirtæki í Danaveldi

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Með blessun dösku ríkisstjórnarinnar vill ESB stofna fyrirtækjaform þar sem sambandið er með puttana í, svo kallað ,,ESB Inc.”
ESB nefnd leggur til að stofna megi fyrirtækið án lágmarksfjárhæðar og að eigendur hafi samt takmarkaðra ábygð. Að auki er lagt til að innheimta vegna gjaldþrots verði einfaldaðar. Þetta er verulegt áhyggjuefni.
Margir í Danaveldi muna eftir þáverandi ,,gründendafyrirtæki (IVS)”, sem mátti stofna í Danmörku fram til 2019. Það var hægt að stofna fyrirtæki fyrir 1 krónu og takmörkuð ábyrgð gilti fyrir eigendurnar. Af þeim sökum var fyrirtækjaformið misnotað í miklu mæli af fjárglæpamönnum að stjórnmálamenn urðu að afnema það.
En þegar ESB kemur hlaupandi og krefst þess að við stofnum ESB-fyrirtæki með sömu áhættu eiginleika, varðandi takmarkaða ábyrgð og hlutafé, þá fagna menn.
Annar þingmaður segir að tillagan feli í sér verulega áhættu á félagslegum niðurskurði launa og reglutilhögun í vinnurétti.
Og það versta af öllu saman. EF ESB fyrirtæki er stofnað og það misnotað til efnahagsbrota, þá getur Danmörk ekkert gert til að stöðva notkun ESB fyrirtækja í landinu. Það myndi krefjast leyfi frá ESB.
Þetta viðurkenndi Martin Lidegaard í Evrópuþingnefndinni s.l. föstudag þegar málið var rætt.
Það verður fylgst náið með málinu. Og Dansk folkeparti munum gera allt sem í þeirra valdi stendur að stöðva tillöguna um ESB- fyrirtæki.
Við kærum okkur ekki um fleiri efnhagsbrot í Danmörku, bara til að uppfylla drauma ESB elítunnar og skrifræðis um samþætt fyrirtæki ESB.
Til viðbótar er vert að minnast á hvað við Íslendingar erum heppnir að meirihluti þjóðarinnar sagði NEI við aðlögun og aðildarviðræðum við ESB. Það er nefnilega ekki bara stóru atriðin sem skipta máli, þau smáu líkt og þessi hugmynd um ESB fyrirtæki er líka undir, ef hún nær fram að ganga. ESB ræður eins og Malte benti á.
Íslendingar hafa sýnt og sannað fyrir öðrum þjóðum að menn geta staðið á eigin fótum og þurfa ekki að fela ESB hluta af fullveldi sínu til að vera með þeim stóru.
,,ESB-réttur hefur að jafnaði forgang þegar hann rekst á landslög á þeim sviðum þar sem ESB hefur valdheimildir. Það þýðir að pólitískur meirihluti á danska þinginu getur ekki að vild breytt öllum þeim reglum sem gilda í Danmörku. Heimild: Upplýsingaskrifstofa danska þingsins um ESB."
Heimild: Malte Larsen þingmaður á Evrópuþinginu fyrir Dani.