Jón Murariu, rúmenskur maður búsettur á Íslandi, er í ferðalagi ásamt konu sinni Guðrúnu Björgu Elínardóttur og dóttur hennar um hina sólríku Svartahafsströnd Rúmeníu. Fréttir bárust af því í dögun að yfirvöld hefðu komið auga á sjávarsjálfsprengidróna út fyrir höfnina í Constanța. Íbúum var sagt að halda rónni og að engin hætta stafaði af drónanum. Annað var hins vegar uppi á teningnum.
Neyðarboð í alla síma
Þegar fjölskyldan var að kaupa í matinn skammt frá þeim stað þar sem þau dvelja í borginni, um kílómetra frá höfninni, hafði dróninn siglt inn í höfnina og sprungið með háværum hvelli og stórum reykjarmekki.
Skömmu síðar fóru símar allra viðskiptavinanna í versluninni að pípa og titra svo fjölskyldunni brá við. Rúmensk yfirvöld höfðu sent út neyðarboð á alla síma á svæðinu.
„Það var svo hátt. Það var ekki huggulegt. Ekki eins og í tívolíi,“ segir Jón og fjölskyldan hlær við.
Blaðamaður hafði samband við þau þar sem þau lágu á ströndinni í sólbaði skammt frá þeim stað sem sjálfsprengidróninn sprakk á.
Fjölskylda Jóns býr í borginni Galați sem er ekki nema rúmum tíu kílómetrum frá landamærunum að Úkraínu. Þar hafnaði dróni í fjölbýlishúsi á dögunum með þeim afleiðingum að tveir særðust. Stríðið er því mun nær en Íslendingar hafa að venjast.
„Þetta er alls ekki vanalegt hér. En við erum svo nálægt stríðinu að svona getur gerst. Lífið gengur samt bara áfram sinn vanagang,“ segir Jón.
Dóttirin skelkuð
Guðrún Björg segir fólki hafa brugðið við neyðarboðin. Sérstaklega ung dóttir hennar.
„Hún var mjög hrædd og spurði: „erum við að fara að deyja?“ segir Guðrún.
Hún segir fjölskylduna einnig hafa farið í göngutúr um hafnarsvæðið, um það bil þar sem dróninn sprakk, í gærkvöldi.
Samkvæmt yfirlýsingum rúmenska varnarmálaráðuneytisins í kjölfar sprengingarinnar var dróninn ekki á vegum þeirra. Ekki er ljóst hvort um úkraínskan eða rússneskan dróna er að ræða og heldur ekki hvort þetta hafi verið gert með ráði eða hvort um tæknibilun hafi verið að ræða.