Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar, en samkvæmt þeim verður hiti víða 8 til 13 stig í dag. Þá hvessir með rigningu í nótt en á morgun ganga tvö úrkomusvæði norðaustur yfir landið með tilheyrandi strekkingsvindi og rigningu. Á þriðjudag léttir til norðaustanlands og dregur úr vætu, en kólnar talsvert vestast um kvöldið.Útlit fyrir að kólni enn frekar þegar líður á komandi viku og má þá búast við að hluti úrkomunnar falli sem slyddu- eða jafnvel snjóél.Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag:
Sunnan og suðaustan 8-15 m/s, en hvassari á stöku stað. Rigning, einkum sunnan- og vestanlands og hiti 8 til 14 stig, hlýjast norðaustantil.
Á þriðjudag:
Sunnan og síðar suðvestan 8-13 m/s og rigning með köflum, en að mestu þurrt norðaustantil. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Norðausturlandi, en kólnar vestast um kvöldið.
Á miðvikudag og fimmtudag:
Suðvestankaldi og skúrir eða slydduél, en léttskýjað austanlands. Hiti 2 til 10 stig, mildast norðaustantil.
Á föstudag:
Útlit fyrir norðvestlæga átt með fremur köldu veðri og éljum fyrir norðan, en yfirleitt þurrt annars staðar.
Á laugardag:
Líklega vestlæg átt með slyddu- eða snjóéljum á víð og dreif, en lengst af bjart veður fyrir austan. Áfram fremur kalt.