Enn er óljóst hvort rússnesku ólígarkarnir Alisher Usmanov og Mikhail Friedman sleppa af lista Evrópusambandsins yfir um 3.000 einstaklinga og stofnanir sem sæta efnahagsþvingunum Evrópusambandsins vegna innrásar Rússa í Úkraínu.
Fólkið og fyrirtækin á listanum sæta frystingu eigna og takmörkunum á ferðafrelsi.
Hart deilt um listann
Frakkar beittu sér fyrir því að fá Usmanov tekinn af listanum og yfirvöld í Lúxemborg þrýstu á að nafn Friedman hyrfi þaðan líka. Frakkar hafa borið við þjóðaröryggi en grunur leikur á að þeir vilji hlífa Usmanov til að liðka fyrir lausn fransks kaupsýslumanns sem dæmdur var í tíu ára fangelsi í Aserbaídsjan fyrr á þessu ári.
Í gær virtist sem samkomulag hefði náðst um að taka þá Usmanov og Friedman af listanum en það var dregið til baka þegar leið á kvöldið. Fundahöld hófust snemma í morgun til að reyna að ná samkomulagi um endanlega gerð listans. Það þarf að gerast fyrir lok dags svo refsiaðgerðirnar renni ekki út.
Átti að fá risalán rétt fyrir hrun
Usmanov er ekki ókunnugur Íslendingum. Hann átti að fá risalán hjá Kaupþingi rétt áður en íslensku bankarnir hrundu 2008. Lánanefnd bankans samþykkti að veita honum lán upp á 270 milljarða íslenskra króna tveimur vikum áður en bankinn féll. Ekkert varð þó af því láni. Talsmaður fyrirtækis Usmanovs sagði síðar í viðtali við Mail on Sunday að Kaupþing hefði leitað eftir viðskiptunum og hann aldrei fengið lánið.
Í frétt RÚV um lánið 2011, þegar fjallað var um lánabók Kaupþings, sagði að Usmanov hefði þótt álitlegur lántaki vegna ríkidæmis og viðskiptatengsla. Aðrar lánveitingar sem voru samþykktar á fundinum hefðu verið til stærstu viðskiptavina og eigenda bankans sem hefðu flestir haft lítið lánshæfi en góð tengsl við bankann.
Usmanov átti 1,48% hlutafjár í Kaupþingi þegar bankinn féll. Hann átti líka stóran hlut í enska úrvalsdeildarfélaginu Arsenal um skeið.