Viðsemjendur í kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair eiga í samtölum sín í milli til að reyna að koma í veg fyrir verkfall en formlegur fundur er ekki í gangi. Þetta segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í viðtali við fréttastofu.
Verkfall flugvirkja hefst á miðnætti ef ekki semst fyrir þann tíma. Verkfallið er ótímabundið og stendur því þar til samningar nást eða því er aflýst eða það stöðvað með öðrum hætti.
Flugvirkjar greindu í gær frá því að þeir hefðu boðist til að fresta verkfallinu um viku til að búa til svigrúm í kjaradeilunni. Icelandair hafnaði því boði og sagði skaðann þegar orðinn, frestun yrði aðeins til að framlengja tímabil óvissu og auka tjón sem flugfélagið hefði þegar orðið fyrir.