Verkfall flugvirkja Icelandair hefst að óbreyttu á miðnætti í kvöld. Öllum flugferðum félagsins verður aflýst komi til verkfalls. Lítið sem ekkert hefur þokast í samningaviðræðum. Engir fundir hafa verið boðaðir að sögn ríkissáttasemjara en óformleg samtöl hafa verið í gangi.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra sagði á Alþingi í gær að verkfall myndi hafa víðtæk áhrif á íslenskt atvinnulíf og ferðafrelsi þjóðarinnar. Staðan var rædd á ríkisstjórnarfundi í morgun og á fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir að ríkisstjórnin fylgist grannt með þróun mála.
„Mér líst ekki nógu vel á stöðuna en ég vonast til þess að samningsaðilar noti daginn vel og nái saman,“ segir Eyjólfur.
Hann segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um að setja lög á verkfallið.
„Þetta var bara rætt á ríkisstjórnarfundi en engin ákvörðun tekin. Ég brýni fyrir samningsaðilum að nota daginn vel í dag og ná saman. Það eru hagsmunir þjóðarbúsins, hagsmunir íslensks samfélags og ekki síst hagsmunir beggja samningsaðila. Ekki bara flugfélags heldur líka verkalýðsfélagsins. Ætla þeir að fara í langt verkfall núna? Þeir þurfa að svara þessari spurningu,“ segir Eyjólfur.