Skilaboðin voru skýr þegar Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti endurmat á herafla og herstyrk Bandaríkjanna í Evrópu fyrir hálfu ári.
Hann sagði NATO hafa villst af leið og nú ætti að tryggja að NATO yrði það sem til stóð. Varnarbandalag jafningja þar sem Evrópa bæri sjálf meginábyrgð á eigin vörnum. NATO 3.0.
Á Hegseth var að skilja að bandarískum hermönnum í Evrópu yrði fækkað stórlega, um allt að 25 þúsund, og jafnframt að ef til átaka kæmi í Evrópu yrðu forsendur þess að Bandaríkin legðu til hefðbundin hertól endurmetnar. Endurmatið ætti að liggja fyrir í byrjun desember.
Á þriðjudag kom svo að því að maðurinn sem leitt hefur þessa endurskoðun ræddi við kollega sína í Evrópu. Elbridge Colby hefur um árabil verið einn helsti talsmaður þess að Bandaríkin dragi úr hernaðarumsvifum í Evrópu og einbeiti sér að Kína. Bandaríkin hafi einfaldlega ekki hernaðargetu til að bera meginþunga varna bæði í Evrópu og Asíu. En þegar hann ávarpaði fundinn var tónninn öllu mildari en undanfarin misseri þótt grundvallarkröfur Bandaríkjanna væru óbreyttar.
Í stað yfirlætislegra skamma hrósaði Colby bandamönnum, sem hefðu sannarlega hlýtt hvatningu Donalds Trumps og aukið framlög til varnarmála stórlega. Bandaríkin vildu sterkari Evrópu og öflugt varnarsamstarf sem byggðist ekki á því að reikningurinn lenti á Bandaríkjunum einum. Það hefði gengið eftir. Í raun hefði orðið algjör kúvending - sem hann taldi mega rekja til Trumps og forystu hans. Hann nefndi ekki að Evrópuríki hefðu kannski aðra ástæðu til að vígbúast, atburði í austri en ekki kröfur úr vestri.
Bloomberg hefur eftir heimildarmönnum að nú stefni í mun minni fækkun bandarískra hermanna í Evrópu en áður var óttast, eða um fimm þúsund í stað allt að 25 þúsund. Fækkunin yrði einkum í Þýskalandi en viðvera Bandaríkjamanna á austurjaðri NATO yrði styrkt. Trump á að vísu eftir að samþykkja þetta allt saman en Bandaríkjaþing hefur sett lagalegar skorður við því að hermenn í Evrópu verði færri en 76 þúsund án sérstaks samráðs og rökstuðnings. Fjöldinn er nú þegar nálægt því marki og svigrúmið til frekari fækkunar því takmarkað.
Íran og vopnakaup breyta forsendunum
Tvennt virðist einkum hafa leitt til þessarar breytingar – fyrir utan breytt pólitískt landslag í Bandaríkjunum. Samkvæmt heimildum Bloomberg hefur stríðið við Íran líka orðið til þess að Pentagon endurmat mikilvægi herstöðva sinna í Evrópu, og raunar hefur fastafulltrúi Bandaríkjanna í NATO verið nokkuð afgerandi um þann þátt. Án yfirflugsheimilda og aðgengis að herstöðvum í Evrópu hefði það reynst Bandaríkjaher nokkuð flókið að halda uppi árásum og síðar vörnum.
Hitt er það sem Colby varði nærri helmingi ræðu sinnar í: útgjöld til varnarmála og vopnakaup. Evrópusambandið vill að þorri aukinna útgjalda til varnarmála renni til evrópskra fyrirtækja og hefur sett reglur um evrópskan forgang í tilteknum sameiginlegum vopnakaupum. Þetta gæti komið niður á bandarískum hergagnaframleiðendum, sem eiga mikið undir viðskiptum við Evrópuríki.
Colby sagði Bandaríkin gera alvarlega athugasemd við þetta. Fyrir vikið færi Evrópa á mis við bestu hertól sögunnar, til að mynda F-35 herþotur. Rétt er að geta þess að ekki eru allir sammála mati Colbys á yfirburðum bandarískra hertóla og óneitanlega felst ákveðin þversögn í því að krefjast aukinnar eigin fjárfestingar Evrópuríkja í vörnum en kvarta undan því að þeirri fjárfestingu sé einkum beint að eigin varnariðnaði álfunnar.
Óvíst um hernaðargetu til framtíðar
Og þótt stefni í minni fækkun hermanna en í upphafi er annarri og ekki síður mikilvægri spurningu enn ósvarað: Hversu mikinn herafla og hernaðargetu ætla Bandaríkin að leggja til varnaráætlana NATO? Þar skipta meðal annars máli orrustuþotur, sjóeftirlitsflugvélar, eldsneytisflugvélar og herskip. Bandaríkin hafa þegar dregið úr skuldbindingum sínum á sumum þessara sviða. Í byrjun desember ætti að skýrast betur hvaða breytingar eru fram undan.