Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness, sendir Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra kaldar kveðjur eftir að hún sagði að stjórnvöld gætu ekki endalaust leyst kjarasamninga með stórum ófjármögnuðum aðgerðapökkum. Kristrún lét þessi orð falla í kvöldfréttum RÚV fyrr í vikunni þar sem hún ræddi um stöðu kjarasamninga en á síðustu vikum hefur mikið verið rætt um möguleikann á að þeim verði sagt upp í haust vegna verðbólgunnar.
Eiríkur hjólar í Vilhjálm og sakar hann um að vera Miðflokksmann: „Útúrsnúningar, uppspuni og aðdróttanir“