Karlmaður var fluttur á slysadeild með áverka sem taldir eru vera eftir skotvopn, og annar var handtekinn í aðgerðum lögreglu við Hafnarbraut á Kársnesi í Kópavogi fyrr í dag.
Þetta staðfestir Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn á rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.
Skotvopn sem fannst á vettvangi var haldlagt, en ekki er hægt að staðfesta að það sé vopnið sem var beitt.
Hinn særði er ekki í lífshættu, en grunur leikur á að hinn handtekni hafi veitt honum áverkana að sögn Elínar Agnesar.
Fór hugsanlega í bakaríið
Vísir.is greindi frá því fyrr í dag maður hefði komið blóðugur inn í bakaríið Brikk sem stendur við Hafnarbraut og óskað eftir því að hringt yrði á sjúkrabíl.
Elín Agnes segir ekki útlokað að það hafi gerst, en getur ekki fullyrt það. „Það er alls ekki ólíklegt að hann hafi gert það, hreinlega,“ segir hún.
Aðgerðum lögreglu á vettvangi er lokið en rannsóknin er í fullum gangi.
Íbúar fengu engar upplýsingar
Greint var frá því skömmu eftir hádegi í dag að lögreglunni hefði borist tilkynning um „alvarlegt atvik“ í vesturbæ Kópavogs í hádeginu. Var tilkynningin þess eðlis að brugðist var hratt við og viðbúnaður mikill.
Sérsveit ríkislögreglustjóra aðstoðaði lögreglu við aðgerðina og tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang.
Íbúar við í fjölbýlishúsinu við Hafnarbrautina fengu engar upplýsingar frá lögreglu meðan á aðgerðinni stóð og voru beðnir um að halda sig fjarri.
Einhverjir töluðu um það sín á milli að þeir hefðu séð blóð við húsið.



