Einar bannaður á Smitten


Að sögn Smitten var prófíllinn fjarlægður þar sem hann samræmdist ekki skilmálum appsins, sem er ætlað einstaklingum en ekki skipulögðum herferðum eða stofnunum.
„Við viðurkennum að okkur fannst nálgunin bæði frumleg og skemmtileg og skiljum vel af hverju hún hefur vakið athygli,“ segir Davíð Örn Símonarson, framkvæmdastjóri Smitten.
Hann segir þó að appið sé ekki vettvangur fyrir stjórnmál:
„Smitten er hinsvegar vettvangur fyrir fólk sem leitar að tengingum við annað fólk, og notendur okkar geta treyst því að samskipti á Smitten séu raunveruleg og ekki hluti af skipulagðri herferð. Þetta er einfaldlega ekki rétti staðurinn fyrir kosningarbaráttu, óháð því hvaða flokkur á í hlut.“
Fram kemur í fréttatilkynningu frá Smitten að frá upphafi hafi stefna Smitten verið að halda forritinu lausu við auglýsingar og skipulagða kynningarstarfsemi, hvort sem um ræði fyrirtæki, stjórnmál eða aðra hagsmunaaðila.
Þrátt fyrir þetta segir Davíð að einstaklingar innan flokksins séu velkomnir á appið:
„Frambjóðendur Framsóknar sem eru einhleypir og leita að einlægri tengingu eru velkomnir á Smitten, eins og öll.“
Smitten er íslenskt stefnumótaforrit sem hefur verið það vinsælasta hér á landi fjögur ár í röð og starfar einnig í Svíþjóð, Noregi, Danmörku og Möltu.