13 ástralskir ríkisborgarar með tengsl við Íslamska ríkið eru á leið frá Sýrlandi til Ástralíu. Hópurinn samanstendur af fjórum konum og níu börnum sem bjuggu í Roj-búðunum í Sýrlandi og höfðu tengsl við íslamska jíhadista.
Áströlsk stjórnvöld segja að sumir einstaklinganna gætu átt yfir höfði sér handtökur í Ástralíu ef þau hafa gerst sek um glæpi eða refsiverð athæfi. Á árunum 2014-2017 var áströlskum ríkisborgurum bannað að ferðast til Raqqa í Sýrlandi en með því vildu stjórnvöld koma í veg fyrir að ríkisborgarar þeirra gengju í raðir Íslamska ríkisins.
Innanríkisráðherra Ástralíu, Tony Burk, hefur sagt að stjórnvöld ætli ekki að aðstoða þennan hóp því það hafi verið hræðileg og skammarleg ákvörðun þeirra að ganga til liðs við ISIS. Hann sagði að ef þessir einstaklingar hefðu framið glæpi gætu þeir gert ráð fyrir því að verða dregnir fyrir dóm án nokkurra undantekninga.
Ástralska lögreglan hefur safnað upplýsingum og gögnum frá Sýrlandi um hvort Ástralarnir hefðu framið glæpi samkvæmt áströlskum lögum, þar með talið að ferðast til bannsvæða og taka þátt í viðskiptum með þræla. Alríkislögregla Ástralíu segir að einstaklingar verði handteknir og ákærðir en gefur ekki upp hversu margir eða hvenær. Aðrir einstaklingar í hópnum verða áfram undir rannsókn.
Þau börn sem koma með konunum fá hins vegar stuðning og verður boðin aðstoð við að aðlagast samfélaginu til að koma í veg fyrir að þau aðhyllist öfgahyggju.
Um 2.000 konur með erlent ríkisfang og börn þeirra búa í Roj-búðunum, eftir að hafa verið á vergangi eftir fall Íslamska ríkisins í mars 2019, samkvæmt sýrlenskum embættismönnum.