Kona sem fór á sitt fyrsta stefnumót í næstum tvö ár varð miður sín þegar hún fékk átta orða sms frá manninum á eftir, skilaboð sem gerðu hana aftur afhuga stefnumótum.
Eins og allir vita sem eru að leita að hinum eina sanna lífsförunaut eða einnar nætur gamni þá eru öpp og samfélagsmiðlar samskiptamiðilinn í dag.
Hayley Lena er ein þeirra sem fór loksins á stefnumót. Karlmaðurinn sem hún hitti sá um skipulagið, ferð á safn fyrir þau. Segir Hayley stefnumótið hafa gengið vel og hún skemmt sér konunglega, þar til maðurinn sendi henni sms.
Í TikTok myndbandi sagði hún að stefnumótið hefði verið með 41 árs gömlum manni og hann hefði skipulagt stefnumótið. Tveimur dögum eftir stefnumótið sendi hann henni síðan sms þar sem hann sagðist „elska“ stefnumótið og fylgdi því eftir með 10 orðum sem fengu hana algjörlega til að hætta að vilja sjá hann aftur.
„Viltu senda mér kostnaðinn fyrir miðann með PayPal?“


Hayley sagði að það að vera beðin um að senda manningum pening fyrir stefnumótið, þegar hann hafði skipulagt viðburðinn og ekki sagt henni fyrirfram að hann vænti þess að hún borgaði honum til baka, hafi valdið henni velgju og hún sé nú að íhuga að draga sig aftur inn í „skelina“ sína þar sem henni finnst stefnumótaheimurinn „of skrýtinn “.
„Var það rangt að ég blokkaði hann? Þetta var prófraunin mín aftur. Mitt fyrsta „fyrsta stefnumót“ í næstum tvö ár, því síðasta samband mitt var sætt og við héngum saman alla nóttina, svo við áttum tæknilega séð aldrei þetta vandræðalega fyrsta stefnumót. Ég mun fara aftur í skjaldbökuskelina mína; það er skrýtið stefnumótaheimur hérna úti.“
Sumir sem tjáðu sig við myndbandið sögðu að það væri fullkomlega eðlilegt að skipta reikningnum á fyrsta stefnumóti, hvort sem það væri að fara út að borða eða á áhugaverðan stað eins og safn eða gallerí. En aðrir héldu því fram að það ætti að tilkynna það fyrst frekar en að „þvinga það fram“ eftir á.
Ein manneskja sagði: „Ég skipti alltaf kostnaðinum við stefnumót. Það er eðlilegt.“
„Strákar, það er alveg í lagi að skipta kostnaði við stefnumót, en það þarf að tilkynna ÁÐUR en stefnumótið fer fram. Ekki þvinga það fram eftir á,“ sagði annar.
Þriðji skrifaði einfaldlega: „Þetta er óvirðing.“
Aðrir bentu einnig á að ef maðurinn vildi ekki borga fyrir miðann hennar, hefði hann einfaldlega getað stigið til hliðar þegar þau voru á safninu og látið hana borga fyrir sig áður en þau fóru yfirhöfuð inn í bygginguna.
Sumir deildu eigin stefnumótasögum þar sem einn skrifaði: „Ég samþykkti einu sinni fyrirfram að borga fyrir miðann minn í dýragarðinn í London á stefnumóti, og þegar við komum að hliðinu leyfði hann mér að borga fyrir miðann minn, dró svo fram gjafabréf þar sem ég keypti tvo fyrir einn og fékk frítt inn.“