Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður og fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið skipuð sendiherra til næstu fimm ára og segir sig því frá þingstörfum á næstu dögum. Hún hyggst þó ekki segja skilið við Sjálfstæðisflokkinn.
Greint var frá skipan Þórdísar í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins í dag. Aðspurð segist Þórdís Kolbrún ekki geta staðfest á hvaða sendiherraskrifstofu hún taki við embætti sendiherra en ef marka má ummæli við færslu sem hún birti á Facebook-síðu sinni í dag má leiða líkur að því að hún verði sendiherra Íslands gagnvart Bretlandi.
Tekur hlutverkið að sér með stolti
„Ráðherra leitaði einfaldlega til mín og bað mig um að hugsa þetta sem og ég gerði og ég komst að þeirri niðurstöðu að ég gæti í þessu hlutverki gert raunverulegt gagn fyrir Ísland og íslenska hagsmuni,“ segir Þórdís Kolbrún.
„Þetta hefur ekki verið í pípunum lengi en þetta er auðvitað stór ákvörðun sem ég þurfti tíma til að hugsa mig um og þetta er niðurstaðan.“
Þórdís Kolbrún segist telja það rétt að segja sig frá þingstörfum vegna þessa. Hún kveðst nú þegar hafa upplýst bæði þingflokk Sjálfstæðisflokksins og sömuleiðis forseta Alþingis. Þá þýði breytingarnar sem fram undan eru þó ekki að hún hyggist hverfa frá Sjálfstæðisflokknum.
„Ég er ekki að segja mig úr Sjálfstæðisflokknum, ég er eingöngu að segja af mér þingstörfum til þess að gegna nýju hlutverki í þágu íslenskra hagsmuna og fyrir Ísland,“ segir Þórdís Kolbrún.
Ég hef áður sagt að það séu komnir upp tímar í alþjóðamálum sem reyna mun öðruvísi og meira á Ísland en hefur verið í áratugi. Þau viðfangsefni ná í mínum huga langt út fyrir persónulegan metnað stjórnmálamanna eða einstakra flokka. Þannig að ég tek þetta tímabundna hlutverk að mér með stolti.“