„Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ - Vísir

„Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ - Vísir

„Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ - Vísir

Þorgrímur flutti til Ólafsvíkur árið 1970. Þar heyrði hann af dreng sem hafði látist í bílslysi þremur árum áður, eftir að faðir hans ók yfir hann. Þorgrímur þekkti drenginn ekki sjálfur en slysið festist í honum og varð síðar kveikjan að því sem hann kallaði lengi „Ólafsvíkurbókina.“

„Þetta slys sló mig svakalega, þótt ég þekkti ekki strákinn. Það kom alltaf aftur upp í hugann. Þegar ég skrifaði mína fyrstu bók, Með fiðring í tánum, árið 1989, poppaði þetta aftur upp og þá fór ég í rólegheitum að velta fyrir mér hvort ég gæti gert eitthvað úr þessu. Ég fór reglulega að punkta hjá mér.“

Smám saman varð til sérstakt hólf í huganum sem hann kallaði „Ólafsvíkurbókina.“ Þar söfnuðust persónur, minningar og atvik án þess að hann vissi nákvæmlega hvað úr yrði. Í fyrra fann hann svo að tíminn væri kominn til að setjast niður og vinna úr efninu.

„Hin bókin mín, Litli Kristur, var tilbúin og ég hugsaði með mér að það væri heilt sumar fram undan. Kannski væri bara rétt að leggja af stað í þetta verkefni. Allt í einu var hólfið orðið fullt af hugmyndum. Þá þurfti ég einfaldlega að fara að vinna úr því.“

Úr varð Ég kom til að gráta, skáldsaga um 55 ára stærðfræðikennarann Jónatan sem snýr aftur til Ólafsvíkur eftir langa fjarveru. Ferðin verður að uppgjöri við sorg, sektarkennd og minningu sem hefur haft áhrif á líf hans frá unglingsárum.

Skrifaði tíu tíma á dag í Helsinki

Stór hluti bókarinnar varð til í Helsinki þar sem Þorgrímur settist að á bókasafni og skrifaði klukkustundum saman. Tónlistin fylgdi honum við vinnuna og hjálpaði honum að finna rétta tóninn í hverjum hluta sögunnar.

„Ég skrifaði tíu klukkutíma á dag á bókasafninu. Ég setti George Michael, The Eagles eða Villa Vill í eyrun, eftir því hvar ég var staddur í sögunni. Ég bjó til stemninguna í hausnum á mér og skrifaði. Það virkar mjög vel fyrir mig.“

Þótt ákveðinn rammi væri til staðar þegar skrifin hófust breyttist sagan fljótt. Þorgrímur áætlar að um helmingur bókarinnar hafi orðið til á leiðinni. Ein af mikilvægustu persónunum, Ísold, var til að mynda ekki hluti af upphaflegu hugmyndinni.

„Ísold átti ekkert að vera í sögunni. Hún kom bara óvænt inn og allt í einu þurfti ég að fara að elta persónurnar. Ég hafði ekki hugmynd um hvernig sagan ætti að enda þegar ég byrjaði. Sagan fann mig í rauninni.“

Þorgrímur lýsir skrifferlinu á mjög sjónrænan hátt. Hann sér senurnar fyrir sér eins og kvikmynd og fylgist með persónunum áður en hann festir atburðina á blað.

„Þegar ég skrifa sé ég bara ramma. Til dæmis: sjoppa, kvöld, hann labbar inn. Ég horfi bara á þetta og hlusta. Bókin er bíómynd í hausnum á mér.“

Eitt helsta þema bókarinnar er hvernig æskan getur haft áhrif langt fram á fullorðinsár. Þorgrímur telur að fólk beri oft með sér gömul sár, ótta eða óöryggi án þess að gera sér strax grein fyrir hvaðan þau komaVísir/Anton Brink

Kallaði gömlu æskuvinina saman

Þótt meginþráður bókarinnar sé skáldskapur sækir Þorgrímur mikið í eigin minningar og frásagnir úr Ólafsvík. Fyrir fjórum árum kallaði hann saman gamla æskuvini sína og bað þá að rifja upp liðna tíð.

„Ég upplifði svo margt með strákunum en það voru nokkrar sögur sem gerðust fyrir mína tíð. Þá ákvað ég að láta Jónatan lenda í þeim til þess að hann væri enn brotnari sem ungur einstaklingur. Það útskýrir hvers vegna hann verður eins og hann verður í hjónabandinu og sem kennari. Söguþráðurinn í gegnum bókina er skáldskapur en litlu hliðarsögurnar eru flestar sannar, þó ekki allar.“

Atvik úr raunveruleikanum eru því víða falin inni í sögunni. Þorgrímur nefnir sem dæmi atriði þar sem Jónatan og vinur hans fara upp á fjall og skjóta á fiskiskip. Það gerði bróðir Þorgríms í raun en ekki hann sjálfur.

„Jónatan er ekki ég, en ég er hann samt“

Þorgrímur tekur skýrt fram að Jónatan sé ekki hann sjálfur. Um leið segir hann hluta af sér leynast í öllum persónunum sem hann skrifar.

„Jónatan er ekki ég, en ég er hann samt sem áður. Ég er líka Ísold. Ég er líka Tínus. Ég er inni í öllu þessu fólki og nota að sjálfsögðu reynslu úr mínu hjónabandi, uppeldi og samskiptum til að búa til trúverðugar persónur.“

Stærstu áföll Jónatans eru þó ekki reynsla Þorgríms sjálfs. Hann missti hvorki föður í sjóslysi né vin í bílslysi. Umhverfið þekkir hann hins vegar vel og segir Ólafsvík hafa mótað sig.

„Ólafsvík ól mig upp. Atburðirnir þar breyttu mér. Ég átti hins vegar ekki föður sem fórst í sjóslysi eða vin sem dó í bílslysi. Mér fannst gaman að blanda þessum tregafullu atburðum inn í þroskasögu fólksins.“

Þótt stóru áföll Jónatans séu skálduð virðist tilfinningaheimur bókarinnar standa Þorgrími nær. Hann talar um æskuna sem eitthvað sem fólk skilur ekki endilega eftir þegar það eldist heldur ber með sér, stundum án þess að gera sér grein fyrir því.

Eitt augnablik úr hans eigin uppvexti stendur honum enn ljóslifandi fyrir hugskotssjónum. Morguninn 23. janúar 1973 vakti móðir hans hann með fréttum af eldgosinu í Vestmannaeyjum.

„Það fyrsta sem hún sagði var: „Vestmannaeyjar eru að leggjast í rúst.“ Ég bara: Vá. Ég gleymi þessu ekki. Ég held að þetta hafi verið pínulítið tráma í mínu lífi. Það eru svona augnablik sem hreyfa við manni.“

Ólafsvík gegnir stóru hlutverki í bókinni og hefur einnig sterkt tilfinningalegt gildi fyrir Þorgrím sjálfan. Hann segir bæinn hafa mótað sig og sækir reglulega aftur á æskuslóðirnar til að rifja upp gamla tíma og tengjast staðnumVísir/Anton Brink

Óvissan sem fékk að standa

Kjarni bókarinnar liggur að stórum hluta í sambandinu milli Jónatans og besta vinar hans, Benna. Þeir voru 14 ára þegar þeir voru að „teika“ aftan í bíl og Benni missti takið. Hann varð fyrir bifreiðinni og lést. Jónatan hefur síðan verið óviss um hvort hann hafi ýtt við honum augnablikinu áður.

„Hann er búinn að dreyma lengi um að biðjast fyrirgefningar þótt hann sé óöruggur um hvort hann hafi í raun valdið dauða vinar síns. Ég held að við könnumst öll við einhvers konar samviskubit eða óöryggi sem við þurfum að losa okkur við. Ég vildi aldrei fullyrða að hann hefði valdið dauðaslysinu. Kannski rann vinurinn bara, ég vil hafa það opið.“

Einn sterkasti hluti bókarinnar að mati Þorgríms er þegar Jónatan er neyddur til að mæta í jarðarför Benna. Þar verður sorgin og vanmátturinn sýnilegur án þess að þurfi að útskýra hann mikið.

„Mér finnst sterkt þegar hann er dreginn inn í jarðarför vinar síns og rífur sig lausan. Þetta er sorglegt og óþægilegt augnablik. Margir þekkja það að vera dregnir inn í aðstæður sem þeir vilja ekki vera í. Hann er bara lítill strákur, fjórtán ára.“

Að skrifa sig frá æskunni

Þorgrímur segir bókina fyrst og fremst fjalla um hvernig æskan mótar fólk. Hann hefur sjálfur velt því fyrir sér hvernig atburðir úr barnæsku geti fylgt fólki árum og áratugum saman án þess að það tengi endilega hegðun sína við það sem gerðist þá.

„Við lendum öll í einhverju og erum kannski að fela það alla ævi. Ef við ætlum að skoða okkur sjálf held ég að margir þyrftu hreinlega að skrifa sig frá æsku sinni og spyrja: Af hverju er ég svona? Þetta atvik situr í mér og ég þarf að gera það upp.“

Þarna færist samtalið frá Jónatan yfir á fólk almennt. Þorgrímur talar ekki um æskuna sem eitthvað sem þurfi endilega að hafa verið skelfilegt til þess að marka manneskju. Minningin geti verið lítil, óttinn gamall og orsakasamhengið jafnvel ekki orðið sýnilegt fyrr en löngu síðar.

„Nú skil ég af hverju ég er feiminn. Nú skil ég af hverju ég er hræddur. Nú skil ég af hverju ég er óöruggur. Þetta atvik situr í mér og ég þarf að gera það upp.“

„Ég á heima þar í hjartanu“

Sjálfur á Þorgrímur auðvelt með að fara aftur í tímann þegar hann kemur til Ólafsvíkur. Hann segist hafa farið þangað hvað eftir annað, gengið um bæinn og dvalið á stöðum sem tengjast æskunni.

„Mér finnst mjög auðvelt að hoppa aftur í tímann. Ég er búinn að fara um tíu sinnum vestur í sumar, bara á æskustöðvarnar, drekka kaffi og ganga um á Snæfellsnesi. Ég á heima þar í hjartanu.“

Bærinn fær fyrir vikið mikið vægi í bókinni. Þar blandast saman minningar Þorgríms, sögur vina og fjölskyldu og skáldskapurinn sjálfur. Raunverulegir staðir rata einnig inn í söguna, meðal annars Lárubúð, sem Þorgrímur fékk leyfi til að nota.

Þorgrímur Þráinsson Þorgrímur Þráinsson rithöfundurVísir/Anton Brink

Áföll sem voru ekki rædd

Tíðarandinn skiptir einnig miklu í sögunni. Þorgrímur rifjar upp samfélag þar sem alvarlegir atburðir voru ekki endilega ræddir opinberlega. Í sjávarplássi voru hættur og dauðsföll nálæg og fólk hélt áfram.

Hann nefnir atriði úr bókinni sem honum finnst lýsa þessu vel. Fólk er saman komið í félagsheimili þegar fréttist að bátur sé að farast. Eiginkona eða börn manns um borð gætu jafnvel verið stödd í salnum en samt sé reynt að halda kvöldinu áfram.

„Kannski er eiginkona viðkomandi á staðnum, börnin hans, en fólk reynir bara að halda haus til að skemma ekki partíið. Svona var þetta. Við erum að tala um svakalega hluti. Drykkjuna, framhjáhaldið og vesenið.“

Lífið í sjávarplássinu gerði líka kröfur til barna frá unga aldri.

„Þetta var sjávarpláss. Börn fóru að vinna í fiski tólf ára. Það þurfti bara að bjarga verðmætum. „Lokum skólanum og björgum verðmætum.““

Karlmennska og bældar tilfinningar

Annar stór þráður bókarinnar er karlmennska og tilfinningar. Þorgrímur segir það hafa verið meðvitaða ákvörðun að fjalla um einstaklinga sem eiga erfitt með að opna sig og segja upphátt hvernig þeim líður.

„Mér finnst oft auðveldara að tjá mig í ritmáli heldur en að segja hlutina beint. Það er mikilvægt að opna sig, hafa hugrekki og bæla ekki tilfinningarnar. Maður þarf að þora að vera einlægur. Það skiptir máli.“

Titill bókarinnar, Ég kom til að gráta, tengist beint þessari hugmynd. Jónatan heldur vestur með ákveðið erindi í huga en ferðin verður að stærra uppgjöri við það sem hann hefur ekki leyft sér að finna eða segja.

Svo gerist það að textinn sjálfur brýtur niður varnir höfundarins.

Fór sjálfur að gráta

Þorgrímur fann sjálfur fyrir tilfinningalegum þunga sögunnar áður en hún kom út. Fyrir um ári var hann á hugleiðslunámskeiði á Sólheimum og bauðst eitt kvöldið til að lesa fyrsta kaflann úr bókinni.

„Ég byrjaði að lesa kaflann og fór að gráta. Samt upplifði ég ekki sjálfur þetta atvik. Tilfinningarnar voru bara svo sterkar; Ólafsvík, vináttan, myrkrið, sjómennskan. Ég réð ekki við mig.“

Hann segir þetta tengjast einu mikilvægasta ráði sem hann hafi fengið sem rithöfundur.

„Það besta sem ég lærði einhvern tíma sem rithöfundur var: Skrifaðu eins og enginn muni nokkurn tímann lesa söguna. Þá þorirðu að segja það sem þig langar að segja og ert ekki að velta fyrir þér hvað mamma þín, konan þín eða frændi segir. Vertu bara sannur. Þá snertirðu hjörtu.“

Tónlistin kallar fram minningar

Tónlistin sem fylgdi Þorgrími við skrifin rataði einnig inn í bókina sjálfa. Þar koma fyrir lög eftir meðal annars Eagles, George Michael, Billy Joel og Vilhjálm Vilhjálmsson.

„Ef mér líður illa blasta ég uppáhaldstónlistina mína og þá sé ég myndir úr æsku minni. Mig langaði að lesendur gætu gert það sama. Þetta er kannski meira tónlist minnar kynslóðar en þinnar. Mig langaði að fólk gæti sjálft hoppað aftur í sína æsku.“

Ljóð gegna sambærilegu hlutverki og kallast á við það sem Jónatan upplifir hverju sinni. Þorgrímur segir þetta allt hafa orðið hluta af sama púsluspilinu.

„Þetta er komið“

Þegar bókin var loks tilbúin fann Þorgrímur fyrir sérstakri tilfinningu. Efnið sem hafði safnast saman í áratugi var loksins komið í eina heild.

„Þetta var skemmtilegt púsluspil að raða öllu saman. Mér finnst það hafa tekist svo vel að tilfinningin er einfaldlega: Ég þarf ekki að skrifa meira. Þetta er komið. Ég sé núna að ég hef verið að bíða eftir henni öll þessi ár án þess að vita það.“

Þorgrímur er þó langt frá því að vera hættur að vinna. Stór hluti starfs hans snýst um börn og ungmenni. Á hverjum vetri ferðast hann um skóla landsins og segist hitta samtals sex til sjö þúsund nemendur, meðal annars í fyrirlestrum, skapandi skrifum og lestrarhvatningu.

Börnin geta alveg einbeitt sér

Þorgrímur segir reynslu sína úr skólunum sýna að börn og unglingar geti vel haldið athygli þegar efnið höfðar til þeirra. Hann nefnir sem dæmi fimmtíu þreytta tíundubekkinga á miðjum föstudegi sem hlusta einbeittir á hann allan tímann.

„Alveg sama hvert ég fer, þetta er alltaf svona. Krakkar geta einbeitt sér. Þau geta verið stillt og prúð. Þau þurfa bara áskoranir við hæfi og ákveðinn aga.“

Hann telur þó skólaumhverfið flóknara en áður. Kennarar þurfi að takast á við meiri fjölbreytni, athyglisvanda og upplýsingaáreiti auk síma og annarra skjátækja.

„Kennarar eru að gera sitt besta, það get ég sagt þér. En það er meiri kvíði, meiri athyglisbrestur og meiri fjölbreytni en áður. Einn kennari getur ekki tekið tuttugu manna bekk og sinnt öllum eins. Það þyrfti helst þrjá eða fjóra fullorðna til að sinna öllum.“

Foreldrar þurfa líka að stíga inn

Þorgrímur telur þó ekki hægt að leggja ábyrgðina á læsi eingöngu á skólana. Foreldrar þurfi svo sannarlega að sinna lestri heima og hjálpa börnum að byggja upp orðaforða.

Hann rifjar upp heimsókn í litlu bæjarfélagi þar sem sex ára drengur kunni svör við öllum spurningum hans um erfið orð. Kennarinn sagði ástæðuna einfalda: Drengurinn las heima í hálftíma á hverjum degi og foreldrarnir fóru yfir þau orð sem hann skildi ekki.

„Hin börnin lesa sum annaðhvort ekkert eða kannski í fimm eða tíu mínútur. Þarna sérðu muninn í orðaforða og sjálfstrausti. Að læra tvö ný orð á dag eru rúmlega sjö hundruð ný orð á ári. Ef foreldrar myndu sinna þessu litla hlutverki myndi sjálfstraust nemenda aukast.“

Þorgrímur telur einnig mikilvægt að börn fái að lesa bækur sem tengjast eigin áhugasviði. Það sé ekki endilega vænlegasta leiðin að setja sömu bókina fyrir heilan bekk og ætlast til að hún höfði jafnt til allra.

„Af hverju má nemandi ekki velja sér bók sem tengist eigin áhugasviði og gera ritgerð úr henni? Sumir vilja lesa fótboltasögur, aðrir fjallaklifursögur eða njósnasögur. Þegar krakkar finna bækur sem tengjast áhugamálum sínum þá lesa þeir. Við erum of föst í sama farinu.“

Starf Þorgríms snýst ekki aðeins um ritstörf heldur einnig mikið um börn og ungmenni. Hann heimsækir skóla um land allt og hittir árlega þúsundir nemenda í tengslum við fyrirlestra, lestur og skapandi skrif.Vísir/Anton Brink

Vill sjá ljósið í augunum

Áhugi Þorgríms á læsi liggur einnig að baki vefsíðunni thorgrimur.is þar sem hann hyggst birta eina nýja barnasögu í hverjum mánuði. Sögurnar verða meðal annars rafbækur, hljóðbækur og litabækur og sérstök áhersla lögð á orðaforða.

Þorgrímur hefur margoft verið spurður hvers vegna hann hafi ekki farið út í stjórnmál. Hann telur sig hins vegar geta haft meiri áhrif með því starfi sem hann sinnir nú þegar.

„Ég hitti samtals sex til sjö þúsund börn og ungmenni á hverjum vetri. Ef ég næ að hreyfa við einum nemanda á hverjum fyrirlestri er ég kannski að hreyfa við hundrað og fimmtíu krökkum á ári. Það er svo dásamlegt að sjá ljós kvikna í augunum á þessum krökkum. Ég þrífst á þessu, að gera gagn.“

Þegar Þorgrímur heyrði fyrst af slysinu árið 1970 gat hann ekki vitað að sagan myndi enn leita á hann þegar hann væri orðinn fullorðinn rithöfundur. Enn síður að hún yrði, 37 árum eftir að hann byrjaði fyrst að punkta hjá sér hugmyndir að bókinni, ein af undirstöðum skáldsögu um sorg, sektarkennd og það sem við berum með okkur úr æskunni.

Hann segist nú sjá að hann hafi að einhverju leyti beðið eftir þessari sögu öll þessi ár.

Hólfið var orðið fullt.

#bara #byrjaði #fór #kaflann #lesa


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262934077d/-eg-byrjadi-ad-lesa-kaflann-og-for-bara-ad-grata-

📰 Aðrar fréttir

Peningarnir frá Britney hættu að berast – Nú er fyrrverandi eiginmaðurinn í vondum málum
📅 30.10.2026 👁️ 1
Peningarnir frá Britney hættu að berast – Nú er fyrrverandi eiginmaðurinn í vondum málum
Kevin Federline, fyrrverandi eiginmaður poppstjörnunnar Britney Spears, stendur nú frammi fyrir málsókn vegna skulda upp á fleiri milljónir króna.Máls...
Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 1
Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna - Vísir
Líkt og Vísir hefur fjallað um gaf Héraðssaksóknari nýverið út ákæru á hendur þeim Vytautas Saslauskas og Arturas Sodys ásamt 68 öðrum fyrir umfangsmi...
Biðst afsökunar og lætur sig hverfa af X - Hvatti til að kjarnorkuvopn væru gerð klár
📅 30.10.2026 👁️ 1
Biðst afsökunar og lætur sig hverfa af X - Hvatti til að kjarnorkuvopn væru gerð klár
Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins hefur beðist afsökunar á því að hafa hvatt forseta Frakklands til að senda hermenn ti...
Olíurisarnir græða stórfé á stríðinu í Mið-Austurlöndum
📅 30.10.2026 👁️ 1
Olíurisarnir græða stórfé á stríðinu í Mið-Austurlöndum
Olíurisarnir græða stórfé á stríðinu í Mið-Austurlöndum Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum...
Mikilvægt að leyfa starfsfólki að kveðja með reisn
📅 30.10.2026 👁️ 1
Mikilvægt að leyfa starfsfólki að kveðja með reisn
Atvinnuleysi er að aukast og fréttir af uppsögnum verða tíðari. Reykjavíkurborg sagði upp 50 manns í hópuppsögn í vikunni og hefur lagt niður 130 stöð...
Borgarbókasafninu gert að skera niður um 5%
📅 30.10.2026 👁️ 1
Borgarbókasafninu gert að skera niður um 5%
Borgarbókasafninu hefur verið gert að skera niður um 85 milljónir króna. Borgarbókaverði var tilkynnt um aðhaldskröfuna í september og hún tilkynnti s...
Hitafundur á Raufarhöfn
📅 30.10.2026 👁️ 1
Hitafundur á Raufarhöfn
Franska fyrirtækið Qair efndi til kynningarfundar á samfélagslegum og umhverfisáhrifum sem að vindorkuver á Hnotasteini myndi hafa á nærumhverfið. Fun...
Stefáni féllust hendur þegar hann frétti hvaða tveimur var sagt upp: „Þetta má hreinlega ekki gerast!“
📅 30.10.2026 👁️ 2
Stefáni féllust hendur þegar hann frétti hvaða tveimur var sagt upp: „Þetta má hreinlega ekki gerast!“
Stefán Pálsson borgarfulltrúi Vinstrisins segir að honum hafi fallist hendur við að frétta að Reykjavíkurborg hafi sagt upp tveimur af þremur starfsmö...
„Talsmönnum þessara ofstækis-skoðanna á ekki að hleypa inn í land okkar!“
📅 30.10.2026 👁️ 2
„Talsmönnum þessara ofstækis-skoðanna á ekki að hleypa inn í land okkar!“
Hjörtur Magni Jóhannsson prestur Fríkirkjunnar segir að skoðanir pakistanska klerksins og sharíadómarans Muhammad Taqi Usmani vera eitur, talsmenn slí...
Heimir Már biðst afsökunar og lokar aðgangi sínum á X
📅 30.10.2026 👁️ 1
Heimir Már biðst afsökunar og lokar aðgangi sínum á X
Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri og upplýsingafulltrúi þingflokks Flokks fólksins, hefur beðist afsökunar á orðalagi athugasemdar þar sem hann h...
Lækka laun kjörinna fulltrúa og bæjarstjóra
📅 30.10.2026 👁️ 2
Lækka laun kjörinna fulltrúa og bæjarstjóra
Bæjarstjórn sveitarfélagsins Stykkishólms samþykkti í gær tillögu forseta bæjarstjórnar um tímabundnar launalækkanir kjörinna fulltrúa.Laun bæjarfullt...
Úkraínumenn sagðir leggja aftur til atlögu að rússneskum olíuhreinsistöðvum
📅 30.10.2026 👁️ 1
Úkraínumenn sagðir leggja aftur til atlögu að rússneskum olíuhreinsistöðvum
Úkraínumenn hafa að nýju hafið árásir á ný á olíuhreinsunarstöðvar í Rússlandi eftir stutt hlé. Þetta sagði varaforsætisráðherra Rússlands í dag og sa...
Leó fyrstur páfa til að greiða atkvæði í bandarískum kosningum
📅 30.10.2026 👁️ 1
Leó fyrstur páfa til að greiða atkvæði í bandarískum kosningum
Leó páfi XIV hefur greitt atkvæði utan kjörfundar í þingkosningum á miðju kjörtímabili Bandaríkjaforseta. Kjördagur er næsta þriðjudag. Páfinn er fyrs...
Crypto giant Binance attempting to recover $6.3bn stolen in hack linked to North Korea
📅 30.10.2026 👁️ 1
Crypto giant Binance attempting to recover $6.3bn stolen in hack linked to North Korea
The cyber-attack, which the company describes as complex, is believed to be the largest ever of its kind.
Veltir fyrir sér hvort Við­skipta­ráð haldi að Ís­lendingar séu hálf­vitar - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Veltir fyrir sér hvort Við­skipta­ráð haldi að Ís­lendingar séu hálf­vitar - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í aðsendri grein Andra Snæs á Vísi. Tilefnið er skýrsla Viðskiptaráðs undir yfirskriftinni: Kraftur í kortunum: lei...
Nablinn leggur bleyjuna á hilluna - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Nablinn leggur bleyjuna á hilluna - Vísir
Andri greinir frá þessum tíðindum á Fésbókinni með fallegri kveðjum og skemmtilegri myndaröð af samstarfsfélögum og skjólstæðingi. „Eftir tæplega átta...
Nablinn hættur á leik­skóla - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Nablinn hættur á leik­skóla - Vísir
Andri greinir frá þessum tíðindum á Fésbókinni með fallegri kveðjum og skemmtilegri myndaröð af samstarfsfélögum og skjólstæðingi. „Eftir tæplega átta...
Heimir Már biðst af­sökunar á orðum sínum - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Heimir Már biðst af­sökunar á orðum sínum - Vísir
Heimir Már skrifaði í gær ummæli við færslu Emmanuel Macron Frakklandsforseta þar sem hann hvatti forsetann til að senda hermenn til Úkraínu og hafa k...
Receptionist among three arrested after €200 stolen from hotel room in Maspalomas
📅 30.10.2026 👁️ 2
Receptionist among three arrested after €200 stolen from hotel room in Maspalomas
Three people have been arrested after €200 was allegedly stolen from a holidaymaker’s hotel room in Maspalomas, Gran Canaria, in a plot police believe...
Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumar­búðir kóngafólksins - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumar­búðir kóngafólksins - Vísir
Epstein og Maxwell eru talin hafa heimsótt kastalann ásamt Mountbatten-Windsor sem áður var þekktur sem Andrés prins. Epstein lést 66 ára gamall í fan...
Russell Brand accusers 'haunted' for years by alleged crimes, court hears
📅 30.10.2026 👁️ 2
Russell Brand accusers 'haunted' for years by alleged crimes, court hears
The women involved in the case had "nothing to gain" apart from "some closure", the prosecutor says.
Icelandair sendi flugmönnum tillögur í kjaradeilunni fram hjá FÍA
📅 30.10.2026 👁️ 2
Icelandair sendi flugmönnum tillögur í kjaradeilunni fram hjá FÍA
Icelandair hefur sent flugmönnum félagsins tillögur sínar að lausn kjaradeilu við Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA).Jón Þór Þorvaldsson, formaður...
Hroll­vekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
Hroll­vekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna - Vísir
Fyrir átta árum leitaði Vísir til Páls Óskar eftir hrollvekjumeðmælum. Hann mælti þar með fimm hrollvekjum sem væru skylduáhorf og svo fimm til viðbót...
Reiði meðal lögreglumanna
📅 30.10.2026 👁️ 4
Reiði meðal lögreglumanna
Hótunum í garð lögreglumanna hefur fjölgað síðustu árin en þær virðast þó hafa litlar sem engar afleiðingar í för með sér. Lögreglumenn eru margir rei...
„Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 2
„Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ - Vísir
Eins og greint hefur verið frá misheppnaðist aftaka Pike í Tennesse-ríki í september. Hún var flutt á sjúkrahús í flýti og raknaði úr rotinu í byrjun ...
Christa Pike segist mikið kvalin andlega og líkamlega
📅 30.10.2026 👁️ 2
Christa Pike segist mikið kvalin andlega og líkamlega
Christa Pike hefur tjáð sig opinberlega í fyrsta skipti síðan hún 30. september lifði af tvær líflátstilraunir á dauðadeild fangelsins í bandaríska rí...
Wolt kærir hótanir til lög­reglu - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 4
Wolt kærir hótanir til lög­reglu - Vísir
„Við líðum það ekki og verður tekið á hótunum og áreitni í gegnum regluvörsluferli okkar, auk þess sem þær hafa verið tilkynntar til lögreglu.“ Christ...
Fylkisstjórinn gefur sterka vísbendingu um framtíð Christu Pike
📅 30.10.2026 👁️ 1
Fylkisstjórinn gefur sterka vísbendingu um framtíð Christu Pike
Bill Lee, fylkisstjóri Tennessee, hefur nú loks gefið vísbendingar um framtíð hinnar dauðadæmdu Christu Pike eftir misheppnaða aftökutilraun í septemb...
Einstæð móðir vann 45 milljónir eftir erfiða tíma: „Loksins gerist eitthvað gott!“
📅 30.10.2026 👁️ 2
Einstæð móðir vann 45 milljónir eftir erfiða tíma: „Loksins gerist eitthvað gott!“
Þrefaldur pottur upp á rúmar 45 milljónir króna fór svo sannarlega á góðan stað síðasta laugardag. Rúmlega fimmtug einstæð móðir með nokkur börn sem h...
Örn spyr hvers vegna Gildi sé að hækka vextina: „Fé sem sjóðfélagarnir eiga sjálfir“
📅 30.10.2026 👁️ 1
Örn spyr hvers vegna Gildi sé að hækka vextina: „Fé sem sjóðfélagarnir eiga sjálfir“
Örn Pálsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, skorar á Gildi lífeyrissjóð að lækka þegar í stað vexti á óverðtryggðum sjóðfé...
US tech stocks see sharp falls over AI cost fears
📅 30.10.2026 👁️ 3
US tech stocks see sharp falls over AI cost fears
Shares in Intel continue to fall while the tech-heavy Nasdaq opens at its lowest level in more than two months.
US tech stocks see sharp falls as AI spending nears $1tn
📅 30.10.2026 👁️ 1
US tech stocks see sharp falls as AI spending nears $1tn
Shares in Intel continue to fall while the tech-heavy Nasdaq opens at its lowest level in more than two months.
Opin augu: Tíðni ákæra hjá ríkisborgurum MENAPT-ríkja reiknast margfalt hærri
📅 30.10.2026 👁️ 1
Opin augu: Tíðni ákæra hjá ríkisborgurum MENAPT-ríkja reiknast margfalt hærri
Opin augu: Tíðni ákæra hjá ríkisborgurum MENAPT-ríkja reiknast margfalt hærri Fréttin30. október 2026Innlent, RannsóknLeave a Comment Tíðni ákæra hjá ...
Móðurfélag Símans fær að kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi
📅 30.10.2026 👁️ 1
Móðurfélag Símans fær að kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi
Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Ása, móðurfélags Símans, á Öryggismiðstöð Íslands og Opnum kerfum. Samkeppniseftirlitið heimilar kaupin á gru...
Ungverjaland tekið í sátt hjá Uppbyggingarsjóði EES-ríkjanna
📅 30.10.2026 👁️ 1
Ungverjaland tekið í sátt hjá Uppbyggingarsjóði EES-ríkjanna
Það var nokkuð stór stund í Búdapest síðasta mánudag, þegar fulltrúar EES-ríkjanna, þar á meðal Espen Barth Eide utanríkisráðherra Noregs, staðfestu s...
Police watchdog to investigate Met over letter about Meghan's father
📅 30.10.2026 👁️ 1
Police watchdog to investigate Met over letter about Meghan's father
The police force faces probe over its handling of a letter containing allegations about Meghan's father.
Hasssmyglari handtekinn meðan vígsluathöfn stóð sem hæst
📅 30.10.2026 👁️ 2
Hasssmyglari handtekinn meðan vígsluathöfn stóð sem hæst
Hálfsextugur karlmaður var handtekinn í gær meðan á vígsluathöfn nýja alþjóðaflugvallarins við grænlenska bæinn Ilulissat stóð.Danska ríkisútvarpið se...
Boðið upp á bólu­setningar í apó­tekum í fyrsta sinn - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 1
Boðið upp á bólu­setningar í apó­tekum í fyrsta sinn - Vísir
Með nýju fyrirkomulagi verður fólki auðveldað að nálgast bólusetningar í sínu nærumhverfi. Markmiðið er að bæta aðgengi að þjónustu, fjölga þeim stöðu...
Örn Bárður Jónsson skrifar: Um óeirðir og róstur – Heimur, hamingja, hugmyndafræði, hamfarir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Örn Bárður Jónsson skrifar: Um óeirðir og róstur – Heimur, hamingja, hugmyndafræði, hamfarir
Laugardaginn 17. október sl. ræddi ég við dóttur mína sem býr á meginlandi Evrópu í myndsíma. Hún var þá í sambandi við dóttur sína sem er við nám í a...
Svarar Njáli Trausta ekki vegna þjóðaröryggis
📅 30.10.2026 👁️ 4
Svarar Njáli Trausta ekki vegna þjóðaröryggis
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra svaraði ekki efnislega fyrirspurn Njáls Trausta Friðbertssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um fj...
Halldór Guðmundsson: Ekki ein einasta Íslendingasaga til í frumriti
📅 30.10.2026 👁️ 4
Halldór Guðmundsson: Ekki ein einasta Íslendingasaga til í frumriti
Engin Íslendingasaga er til í frumriti og handritin okkar eru afrit af afritum. Litlu mátti muna að 400 íslensk handrit yrði brunanum mikla í Kaupmann...
Samkaup þarf að greiða 82 milljónir króna í bætur – Brutu samning við netverslun
📅 30.10.2026 👁️ 2
Samkaup þarf að greiða 82 milljónir króna í bætur – Brutu samning við netverslun
Samkaup hefur verið dæmt til að greiða rúmar 82 milljónir króna í bætur til fyrirtækisins Netgengisins, sem rekur aha.is. Höfðu fyrirtækin gert samnin...
Fylgist þú alltaf með fréttum? Taktu fréttakvissið - RÚV.is
📅 30.10.2026 👁️ 3
Fylgist þú alltaf með fréttum? Taktu fréttakvissið - RÚV.is
Hér eru tíu spurningar úr fréttum vikunnar. Veistu í hvaða landi Eurovision er haldið, hver treður upp á Ofurskálinni og hvaða bóluefni er talið geta ...
„Mikil vanþekking og jafnvel fordómar“ mæta fólki með ME-sjúkdóminn
📅 30.10.2026 👁️ 4
„Mikil vanþekking og jafnvel fordómar“ mæta fólki með ME-sjúkdóminn
Formaður ME-félagsins á Íslandi segir nýja skýrslu landlæknis veita von. Það geti beinlínis verið hættulegt að meðhöndla sjúkdóminn rangt.Í nýrri skýr...
Breytingar á Samkeppniseftirlitinu á þingmálaskrá
📅 30.10.2026 👁️ 4
Breytingar á Samkeppniseftirlitinu á þingmálaskrá
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir að gagnrýni Harðar Arnarsonar, fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar, á Samkeppniseftirlitið veki upp...
Uppsagnir alltaf áhyggjuefni
📅 30.10.2026 👁️ 4
Uppsagnir alltaf áhyggjuefni
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir uppsagnir hjá ríkisstofnunum vera vegna hagræðingarkröfu stjórnvalda. Hann segir þó áhygg...
Borga sama kílómetragjald en fá verri þjónustu
📅 30.10.2026 👁️ 3
Borga sama kílómetragjald en fá verri þjónustu
Íbúar Árneshrepps borga sama kílómetragjald og aðrir Íslendingar. Engu að síður er þjónusta Vegagerðarinnar umtalsvert minni í sveitarfélaginu heldur ...
„Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 5
„Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ - Vísir
Í vikunni greindi forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins frá því að til skoðunar væri að bjóða upp á heimsendingarþjónustu á áfengi. Einn eige...
Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi - Vísir
Vísir fjallaði á sínum tíma ítarlega um áminningu Höskuldar en hann var skipaður skiptastjóri í opinberum skiptum á dánarbúi konu í júlí árið 2020.  L...
„Hafðu kjarn­orku­vopnin til­búin“ - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 5
„Hafðu kjarn­orku­vopnin til­búin“ - Vísir
Frakklandsforseti skrifaði færslu á samfélagsmiðilinn X í gær þar sem hann vottar Úkraínumönnum samúð vegna drónaárásar Rússa í Dnipro. Lenti dróninn ...