„Eftir HM munu mjög líklega einhverjir leita sér aðstoðar“
Áætlað er að heimsmeistaramót karla í knattspyrnu sem nú fer fram verði stærsti veðmálaviðburður í heimi. Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ segir Ísland ekki undanskilið slíkri spá. Innan við tíu prósent af þeim sem glíma við spilafíkn leita sér aðstoðar.
„Auðvitað eigum við að taka mark á því sem er verið að segja, að þetta sé stærsti veðmálaviðburður í heimi. Það er ekkert undanskilið hér frekar en annars staðar,“ segir Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður Samtaka áhugafólks um áfengis- og vímuefnavanda, SÁÁ. „Litla Ísland sleppur ekkert þótt við höldum það stundum.“ Fjárhættuspil hafa löngum verið tengd við íþróttaviðburði en í júní birti BBC frétt þess efnis að heimsmeistaramót karla í knattspyrnu, sem nú fer senn að ljúka, yrði stærsti veðmálaviðburður í sögunni. Gert er ráð fyrir því að yfir fimmtíu milljarðar bandaríkjadala, um 6,7 billjónir íslenskra króna, fari í veðmál meðan á mótinu stendur.

Anna Hildur segir að afleiðingar spilafíknarinnar komi oft fram nokkrum vikum eftir að fíknin hefst. Hún segist því búast við að áhrif mótsins muni verða sýnilegri í haust. „Við reiknum …