Poppstjarnan Dua Lipa og leikarinn Callum Turner gengu í hjónaband í London í dag að sögn fjölmiðla, sem segja að í kjölfar hinnar látlausu athafnar gæti fylgt þriggja daga veisla á Sikiley.
Slúðurblöðin The Sun og Daily Mail birtu myndir af parinu þar sem það yfirgaf Old Marylebone Town Hall eftir borgaralega athöfn með aðeins fáeinum fjölskyldumeðlimum og vinum.
Dua Lipa, sem er þrítug, klæddist hvítum hatti og kjól sem hannaður var af Schiaparelli-tískuhúsinu fyrir brúðkaupið, að því er fram kemur í fréttum. Turner, sem er 36 ára, var í dökkbláum jakkafötum.
Hafa verið saman í tvö ár
The Sun sagði að þau hygðust nú halda „stórfenglega“ þriggja daga veislu á Sikiley í lok næstu viku. Fulltrúar parsins, sem hefur verið saman síðan í janúar 2024, svöruðu ekki beiðni AFP um umsögn.
Dua Lipa er vinsælasta poppsöngkona heims, en fyrsta smáskífa hennar, „Be The One“, kom út árið 2016. Lipa tilkynnti í viðtali við breska Vogue á síðasta ári að hún og Turner hygðust ganga í hjónaband.
Turner varð heimsþekktur fyrir hlutverk sitt í „Fantastic Beasts“-kvikmyndunum. Hann er talinn líklegur kandídat í hlutverk næsta James Bond.