Lögreglumenn drógu rafbyssur 30 sinnum úr slíðri á fyrsta ársfjórðungi og beittu þeim fimm sinnum. Frá þessu segir í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra.
Aldrei hefur rafbyssum verið beitt eins oft á einum ársfjórðungi en lögregla segir erfitt að meta hvort tilfellum fer almennt fjölgandi. Á þriðja ársfjórðungi í fyrra var rafbyssum til dæmis beitt fjórum sinnum en aldrei á síðasta ársfjórðungi 2025.