Bandaríkjaher drap í nótt Hector Guerrero Flores, leiðtoga venesúelsku glæpasamtakanna Tren de Aragua. Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá þessu í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social.
Glæpasamtökin rötuðu í heimsfréttirnar eftir að Trump sendi mörg hundruð liðsmenn þeirra úr landi. Þeir voru fluttir í fangelsi í El Salvador.
Trump sagði árás hersins hafa verið gerða í náinni samvinnu við „vini okkar í Venesúela“. Þar vísar hann í stjórn Delcy Rodriguez en hún tók við sem forseti Venesúela til bráðabirgða eftir að Bandaríkin steyptu Nicolás Maduro af stóli í janúar.
„Fyrir vikið eiga hryðjuverkamenn Tren de Aragua hvergi skjól lengur, hvorki í Venesúelu né annars staðar,“ skrifaði Trump á Truth Social. Hann tiltók ekki hvar árásin var gerð.
Færslunni fylgir 10 sekúndna myndskeið. Þar er horft ofan á hús sem síðan er sprengt í loft upp.