Diljá lenti í árekstri á dögunum og hefur átt í erfiðleikum með háls og bak í kjölfarið.
„Takk fyrir öll fallegu skilaboðin. Ég er sem betur fer ekki alvarlega slösuð eftir umferðaróhápp, en háls- og bakmeiðsl geta reynt sérstaklega á okkur mígrenisjúklinga.
Ég hef því verið skikkuð í smá hvíld og sjúkraþjálfun með það að markmiði að geta snúið höfðinu meira en 15 gráður,“ skrifar Diljá meðal annars á Instagram og bætir við að fáir séu sáttari með hvíldina en hundurinn hennar.
„Simbi minn er hæstánægður enda hefur göngutúrum í fallega haustveðrinu snarfjölgað.“
Júlíus Viggó Ólafsson hefur tekið sæti sem varaþingmaður fyrir Diljá á meðan að veikindaleyfinu stendur.