Dekk flugvélar af gerðinni DC-3 sprakk við lendingu á Reykjavíkurflugvelli síðdegis í dag. Loka þurfti flugvellinum tímabundið vegna þessa. Andri Ómarsson, staðgengill upplýsingafulltrúa Isavia, staðfestir þetta.
Ekki liggur fyrir hver fjöldi farþega um borð var. Andri segir þó engan hafa meiðst við lendinguna. Allt áætlunarflug og almennt flug er komið á áætlun.
„Það eru allar brautir á flugvellinum nothæfar eins og staðan er núna,“ segir Andri.
Hann segir flugvélina hafa stoppað á brautarmótum eftir atvikið. Þegar reynt var að hreyfa hana hafi felga virst vera brotin. Vagn var settur undir flugvélina til að hreyfa hana til.
„Hún er komin í öruggt skjól fyrir utan braut.“
Vísa þurfti sex vélum frá Reykjavíkurflugvelli á meðan honum var lokað. Andri segir þrjár hafa flogið til Keflavíkur í staðinn, en að þyrla og smærri flugvélar hafi lent í návígi við Reykjavík eins og á Sandskeiði og á Hólmsheiði.