Deilt um orð Hildar um „súkku­laðikleinuna“ Sönnu - Vísir

Deilt um orð Hildar um „súkku­laðikleinuna“ Sönnu - Vísir

Deilt um orð Hildar um „súkku­laðikleinuna“ Sönnu - Vísir

Össur Skarphéðinsson, sem er einn stofnenda og fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, segir í færslu á Facebook að Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, eigi ekki erindi í stól borgarstjóra Reykjavíkur. 

Byggir hann það á því að Hildur hafi kallað Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, oddvita Vinstrisins, „súkkulaðikleinu“ í viðtali. Sumum þykir Össur teygja sig heldur langt í ásökunum og segja skammarlegt að saka fólk sem maður sé ósammála í pólitík um rasisma að ósekju.

Orð Össurar, hafa hleypt af stað miklum deilum um hugtakið súkkulaðikleinu og rasisma og keppast þjóðþekktir Íslendingar og stjórnmálafólk við að leggja orð í belg á Facebook-síðu hans.

Fái að vera súkkulaðikleina í umræðunni

Það var í hlaðvarpinu Þjóðmálum sem Hildur lét þau orð falla að vinstri flokkar væru að lofa fólki öllu fögru og leggja fram áætlanir sem ómögulegt væri fyrir þá að standa við.

„Einmitt bara Sanna, sem einhvern veginn fær oft að vera algjör súkkulaðikleina í umræðunni, sem boðar hérna stórkostlega uppbyggingu á félagslegu húsnæði með aukinni skuldsetningu Félagsbústaða og ber það saman við einhver fasteignafélög á markaði og ætlar að ljúga því að fólki að það verði einhver hagstæð leiga. Þetta er bara della,“ sagði Hildur.

Ummælin úr Þjóðmálum má sjá hér að neðan.

Þessi ummæli virðast hafa farið fyrir brjóstið á Össuri sem stakk niður penna.

„Ég er kannski viðkvæmari fyrir því en aðrir þegar konur með brúna húð eru uppnefndar „súkkulaðikleinur“. Mér fannst þetta að minnsta kosti síðasta sort hjá Hildi og leyfi mér að efast stórlega um að hún eigi erindi í stól borgarstjóra. I rest my case,“ skrifaði hann á Facebook.

Gamalt orðalag um börn í leik

Þegar kemur að hugtakinu súkkulaðikleina hefur það lengi verið notað af Íslendingum í samhengi við börn við leik. Súkkulaðikleinur séu börn sem njóti ákveðinnar verndar í leiknum og taki ekki ábyrgð.

Í gegnum árin hafa orðin súkkulaði og kleina einnig verið notuð um þetta sama hugtak, en það virðist hafa verið breytilegt eftir árum og bæjarfélögum. Hugtakið hefur þar að auki ekki eingöngu átt við börn. Fullorðið fólk er oft einnig kallað súkkulaðikleina.

Meðal annars má vísa til umræðu um þetta hugtak í Facebook-hópnum Skemmtileg íslensk orð frá desember 2022. Þar var hugtakið einnig til umræðu árið 2020 og kom þá fram að orðalagið væri mjög breytilegt eftir aldri fólks og hvaðan það kæmi.

Samhengið skipti máli

Margir taka undir gagnrýni Össurar, þá frekar fólk á vinstri væng í pólitík, á meðan Sjálfstæðismenn og fleiri koma Hildi til varnar.

Meðal þeirra sem taka undir gagnrýnina er Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður, sem segist hissa á að Hildur sé ekki spurð út í þessi ummæli. Hann segir að Sigmundi Davíð eða Snorra Mássyni yrði ekki hlíft við svona ummælum.

Eiríkur Rögnvaldsson prófessor emeritus í íslensku tekur einnig undir gagnrýni Össurar. Hann segir samhengið skipta máli. Þegar orðið „súkkulaðikleina“ sé notað um konu með dökkan hörundslit sé ekki hægt að túlka það öðruvísi en það vísi til húðlitar.

Öðrum þykir Össur teygja sig langt í gagnrýninni. Í einum ummælum er vísað til þess að Hildur hafi kallað Einar Þorsteinsson, oddvita Framsóknarflokksins, súkkulaðikleinu í kappræðum Sýnar, hið rétta er að það var í kappræðum MBL. Sú sem bendir á það segir að Hildur einhvern tímann hafa kallað sig súkkulaðikleinu.

Páll Magnússon, fyrrverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi útvarpsstjóri, segir að í samhenginu sem Hildur hafi látið þessi orð falla þýði súkkulaðikleina að vera „stikkfrí“ og að vera hlíft umfram aðra. Þetta sé alþekkt hugtak og hafi ekkert með húðlit að gera.

„Það er skammarlegt að hefja rasistastimpilinn á loft að ófyrirsynju þótt maður sé ósammála einhverjum í pólitík,“ segir Páll.

Illugi svarar Páli á þá leið að oft hafi verið talað um Katrínu Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, sem gluggaskraut manna. Það hafi honum alltaf þótt skammarlega að orði komast.

„Mér finnst líka skammarlegt að saka starfandi stjórnmálamann, sem hefur sannarlega staðið í ströngu, um að vera „stikkfrí“. Það er Hildi reyndar ekki til sóma.“

Rúnar Freyr Gíslason, frambjóðandi á lista Sjálfstæðismanna í Reykjavík lætur einnig að sér kveða í umræðunni við færslu Össurar og segir að hann hljóti að vita betur. Hann vísar einnig til gamallar notkunnar hugtaksins og bendir á að Hildur hafi einnig kallað Einar súkkulaðikleinu.

„Þetta er ömurlegt hjá þér Össur, ég trúi varla að þú sért að halda þessu fram. Það trúir enginn því að Hildur sé rasisti, ekki nokkur maður. Úff.“

Inga Auðbjörg Straumland, fyrrverandi formaður Siðmenntar, svarar Rúnari um hæl.

„Við vitum öll að súkkulaðikleina merkir stikkfrí. Ekki láta eins og við séum bara illa að okkur í barnaleikjum. Vandamálið er að átta sig ekki á því að félagslegt samhengi skiptir máli þegar þú velur orðin þín. Ég get kallað barnið mitt apakött þegar hann er að klifra í trjánum, en það er ekki í lagi að kalla brúnan bekkjarbróður hans það. Þetta er mér ljóst og mörgum fleirum,“ segir Inga.

Öllum geti orðið á að nota orð sem hæfi ekki samhenginu. Það sé tilfellið hjá Hildi.

„En í stað þess að biðjast afsökunar, fordæma eigin orð og útskýra merkinguna, en jafnframt viðurkenna að orðin hafi verið vitlaust valin, þá mætir fólkið hennar í kommentakerfið og bakkar orðin upp; snýr út úr og gerir lítið úr atvikinu.“

Orðin séu ekki vandamálið heldur viðbrögðin. 

Vísaði einnig í deilur innan Sjálfstæðisflokksins

Þetta er ekki eina færslan sem Össur hefur skrifað um Hildi á dögunum og greinilegt að flokkur hennar er honum ofarlega í huga. Kosningaspá Vísis spáir Sjálfstæðisflokknum átta borgarfulltrúum á meðan Samfylkingunni hefur fatast flugið og mælist nú með fimm. 

Össur skrifaði aðra færslu um Hildi á Facebook í gær eftir kappræðurnar á Rúv. Sú færsla fjallaði um það að miklar deilur hafa átt sér stað innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins undir stjórn hennar þar sem borgarfulltrúar hefðu verði ósammála og sumir yfirgefið flokkinn.Velti hann vöngum yfir því hvort flokkur sem gæti ekki stjórnað sjálfum sér gæti stjórnað borginni.

Bolli Thoroddsen , sem er innanbúðarmaður í Sjálfstæðisflokknum, er meðal þeirra sem hefur svarað færslu Össurar frá því í gær. Rifjar hann upp feril Hildar í stjórnmálum, vinnu og félagsmálum og vísar til þess að undir stjórn hennar hafi fylgi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík aukist til muna.

Bolli segir sína heitustu ósk vera meirihluta myndaðan af Sjálfstæðisflokknum, Framsókn og svo Miðflokknum og/eða Viðreisn.

„Vil ég nota tækifærið að hvetja Viðreisn til að endurskoða afstöðu sína og útiloka ekki samstarf við Miðflokkinn. Ég hef starfað með Ara Edwald sem er framsýnn og öflugur rekstrarmaður. Þó ég, líkt og margir, telji að Samfylkingin þurfi langt og gott frí í borginni þá vil ég heldur ekki að Hildur útiloki slíkt tveggja flokka samstarf. Öfugt við ýmsa leiðtoga hefur hún einmitt ekki gert það. Sem kemur aftur að mínum útgangspunkti hér, þ.e. hversu víðsýnn og skynsamur leiðtogi Hildur Björnsdóttir er.“

#deilt #hildar #orð #sönnu #súkkulaðikleinuna


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262884724d/deilt-um-ord-hildar-um-sukkuladikleinuna-sonnu

📰 Aðrar fréttir

Leyniþjónustan rannsakar grínhljómsveit sem „tók Trump af lífi“ – Hafa tekið forseta af lífi í áratugi
📅 30.06.2026 👁️ 0
Leyniþjónustan rannsakar grínhljómsveit sem „tók Trump af lífi“ – Hafa tekið forseta af lífi í áratugi
Bandaríska leyniþjónustan hefur haft þungarokkshljómsveitina GWAR til rannsóknar vegna „aftöku“ á Donald Trump á tónleikum. GWAR, sem er grínsveit og ...
Lögreglan leitar að 15 ára dreng
📅 30.06.2026 👁️ 0
Lögreglan leitar að 15 ára dreng
Lögreglan á Vesturlandi hefur lýst eftir Cezary Kobiela, 15 ára dreng. Cezary fór frá Borgarnesi í gær með strætó suður til Reykjavíkur eða Akraness.C...
Sér Blöndu­ós eflast með byggðalínu og virkjunum - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Sér Blöndu­ós eflast með byggðalínu og virkjunum - Vísir
Við Blönduós er verið að tvöfalda gagnaver Borealis og kalla framkvæmdirnar á allt að tvöhundruð manns í vinnu. Samtímis verða til milli þrjátíu og fj...
Þriggja ára dreng bjargað eftir sex daga í húsrústum í Venesúela
📅 30.06.2026 👁️ 0
Þriggja ára dreng bjargað eftir sex daga í húsrústum í Venesúela
Þriggja ára gömlum dreng var bjargað lifandi úr rústunum í höfuðborginni Caracas í dag, sex dögum eftir að tveir gríðarlega harðir jarðskjálftar riðu ...
Mímósuísinn ljúf­fengur en gerir aldrei aftur Jäger­meister-ís - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Mímósuísinn ljúf­fengur en gerir aldrei aftur Jäger­meister-ís - Vísir
Kúabúið Holtsel er einn vinsælasti áningarstaður Eyjafjarðarsveitar en þar er rekin ísbúðin Holtsels Hnoss. Ísinn er búinn til á staðnum og úr mjólk þ...
Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna - Vísir
Hópur fólks er um borð í skipinu Bandero til að fylgja eftir Aðgerð 86 sem Paul Watson-samtökin skipulögðu. Markmið þeirra er að stöðva hvalveiðar á Í...
Lög­reglan leitar að Cezary - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Lög­reglan leitar að Cezary - Vísir
Cezary er um 178 sentimetrar á hæð, grannur og dökkhærður. Hann var klæddur í svarta úlpu með loðkraga og dökkar buxur. Hann fór í strætó í gær suður ...
Óvænt vinátta hunds og elgs
📅 30.06.2026 👁️ 1
Óvænt vinátta hunds og elgs
Hundurinn Boss í Ockelbo í Svíþjóð hefur tekið félagsskap elgsins Stínu fagnandi en hún flutti nýlega á heimilið. Elgurinn fæddist veikburða og er því...
Togari varð aflvana fyrir utan Siglufjörð
📅 30.06.2026 👁️ 1
Togari varð aflvana fyrir utan Siglufjörð
Björgunarskipið Sigurvin frá Siglufirði var kallað út á mesta forgangi á sjöunda tímanum í kvöld eftir að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar bárust neyðar...
Afl­vana togari hættu­lega ná­lægt landi - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Afl­vana togari hættu­lega ná­lægt landi - Vísir
Leg Ottós, sem kemur frá Vestmannaeyjum, hafði ofhitnað og þess vegna kom mikill reykur en enginn eldur. Rek skipsins breyttist örlítið og var það kom...
Ein sviðsmyndin að draga Bandero til hafnar
📅 30.06.2026 👁️ 1
Ein sviðsmyndin að draga Bandero til hafnar
Dómsmálaráðherra segir að gripið verði til aðgerða láti áhöfnin á Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna, verða af hótunum sínum. Háttsemi sem ógni ísl...
Venezuela: Three-year-old rescued and taken to hospital six days after quake
📅 30.06.2026 👁️ 1
Venezuela: Three-year-old rescued and taken to hospital six days after quake
Video footage shows rescuers cheering as the child is pulled from rubble in La Guaira state.
Patient tests negative after Ebola alert at Glasgow hospital
📅 30.06.2026 👁️ 1
Patient tests negative after Ebola alert at Glasgow hospital
Precautionary measures were taken after the patient was admitted to the Queen Elizabeth University Hospital early on Tuesday.
Vegum lokað og bílar taldir - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Vegum lokað og bílar taldir - Vísir
„Við höfum verið að meta stöðuna með fjölmörgum aðilum og átt marga fundi. Við erum að reyna að átta okkur á því hvar þolmörkin okkar eru hérna á Vest...
Wimbledon 2026 results: Serena Williams beaten by Maya Joint in three sets on singles return
📅 30.06.2026 👁️ 1
Wimbledon 2026 results: Serena Williams beaten by Maya Joint in three sets on singles return
Serena Williams came close to a sensational comeback win on her Wimbledon return before losing an epic three-setter against Maya Joint.
Nýfætt barn fannst látið á kamri á teknóhátíð
📅 30.06.2026 👁️ 1
Nýfætt barn fannst látið á kamri á teknóhátíð
Nýfætt barn fannst látið á kamri á tónlistarhátíð í Michigan í Bandaríkjunum. Rannsókn á málinu er hafið og beðið er eftir niðurstöðum krufningar.Tíma...
Guðmundur Franklín með samsæriskenningu um rasísku ummælin gegn Pawel Bartoszek – „Plönuð og pöntuð“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Guðmundur Franklín með samsæriskenningu um rasísku ummælin gegn Pawel Bartoszek – „Plönuð og pöntuð“
Guðmundur Franklín Jónsson, fyrrverandi forsetaframbjóðandi, segir að ummæli sem tekin hafa verið saman á netinu um Pawel Bartoszek gætu hafa verið „p...
Sjálfvirkar neyðarhringingar til Neyðarlínunnar hafa þurrkast út
📅 30.06.2026 👁️ 1
Sjálfvirkar neyðarhringingar til Neyðarlínunnar hafa þurrkast út
Eftir að Ísland slökkti alveg á 2G- og 3G-kerfinu hefur eCall, kerfi sem hringir sjálfvirk neyðarsímtöl úr bílum, nánast þurkkast út. Í maí voru þau 1...
Starf­semi Hvals mögu­lega í upp­nám: Hefur ekki svarað eftir­litinu frá því í maí - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Starf­semi Hvals mögu­lega í upp­nám: Hefur ekki svarað eftir­litinu frá því í maí - Vísir
Þorsteinn Narfason, framkvæmdastjóri eftirlitsins, segir í samtali við fréttastofu að svo virðist sem mengunin verði til við mjölvinnslu þar sem hluti...
Kostnaður við að geta ekki átt barn í heimabyggð hlaupi á hundruðum þúsunda
📅 30.06.2026 👁️ 1
Kostnaður við að geta ekki átt barn í heimabyggð hlaupi á hundruðum þúsunda
Par á Stöðvarfirði sér fyrir sér að kostnaður þeirra vegna lokunar einu fæðingardeildarinnar á Austurlandi í sumar geti hlaupið á hundruðum þúsunda. Þ...
Segir verk Þór­bergs enn ó­trú­lega lifandi - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Segir verk Þór­bergs enn ó­trú­lega lifandi - Vísir
Í kvöldfréttum Sýnar var farið að Hala í Suðursveit. Það vakti nokkra umræðu síðastliðið haust þegar fréttir birtust af því að Halldór Laxness væri mi...
„Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
„Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ - Vísir
„Það er svo sjúklega gaman að rifja upp og skoða myndir og æðisgengið að hundruð vina hafi verið í trylltu dansandi stuði til eitt um nóttina á þriðju...
Why Starmer's defence plan leaves next PM with £4.7bn headache
📅 30.06.2026 👁️ 0
Why Starmer's defence plan leaves next PM with £4.7bn headache
Keir Starmer announces extra defence spending - but the subject will still be one of the trickiest issues in his successor's in-tray.
Major telur Breta eiga afturkvæmt í Evrópusambandið: „Þetta hefur skaðað þjóðina“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Major telur Breta eiga afturkvæmt í Evrópusambandið: „Þetta hefur skaðað þjóðina“
John Major, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Íhaldsflokksins á árunum 1990 til 1997, segir að Bretar þurfi að fá aðgang að innri markaði Evrópu ...
Logi fór á skeljarnar við Como-vatn - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Logi fór á skeljarnar við Como-vatn - Vísir
Parið greinir frá trúlofuninni með mynd í hringrás (e. story) á Instagram þar sem Logi sést á öðru hnénu með hring í hendi. Þau virðast hafa fagnað tr...
Labour women tell Burnham half of next government should be female
📅 30.06.2026 👁️ 1
Labour women tell Burnham half of next government should be female
Female MPs urge Burnham to ensure Labour lead by example on equality should he become prime minister.
Óttast slys og lokar fyrir aðgengi að Fosslaug og Reykjafossi: „Ágangurinn stjórnlaus“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Óttast slys og lokar fyrir aðgengi að Fosslaug og Reykjafossi: „Ágangurinn stjórnlaus“
Landeigandi í Skagafirði hefur áhyggjur af öryggi ferðafólks og náttúruspjöllum á landareign sinni. Hann segist tilneyddur til að loka fyrir aðgang.„Þ...
Row over plan to demolish Nazi bunker under Berlin
📅 30.06.2026 👁️ 1
Row over plan to demolish Nazi bunker under Berlin
City officials want to build flats on the city centre site but others say it should be preserved as part of Germany's history.
Langreyður háði „óvanalega langt“ dauðastríð
📅 30.06.2026 👁️ 1
Langreyður háði „óvanalega langt“ dauðastríð
Langreyður sem Hvalur 8 veiddi 22. júní síðastliðinn var skotin með fjórum sprengiskutlum, samkvæmt eftirlitsskýrslu Matvælastofnunar. Þrjátíu og ein ...
„Hagið ykkur eins og full­orðið fólk“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
„Hagið ykkur eins og full­orðið fólk“ - Vísir
Tíundi hvalur vertíðarinnar var dreginn að landi fyrr í morgun á hvalveiðistöðinni í Hvalfirði. Á meðan hvalurinn var dreginn var þjóðsöngur Íslands s...
Rússar gleðjast yfir óvissu en Keflavík enn mikilvæg
📅 30.06.2026 👁️ 1
Rússar gleðjast yfir óvissu en Keflavík enn mikilvæg
Eru Bandaríkin að kalla herlið sitt frá Evrópu og blasa endalok NATO við? Þeirrar spurningar hefur ítrekað verið spurt síðustu misseri í ljósi yfirlýs...
Patient tested for suspected Ebola virus at Glasgow hospital
📅 30.06.2026 👁️ 1
Patient tested for suspected Ebola virus at Glasgow hospital
It is understood a patient was admitted to the Queen Elizabeth University Hospital during the early hours of Tuesday.
„Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
„Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ - Vísir
Í dag var greint frá tveimur stórum málum þar sem lögregla lagði hald á fíkniefni í tuga kílóa tali; annars vegar var 106 kílóum af kókaíni smyglað me...
Leikkonan opinberar hvernig bera á fram raunverulegt eftirnafn hennar sem mörgum þykir neyðarlegt
📅 30.06.2026 👁️ 1
Leikkonan opinberar hvernig bera á fram raunverulegt eftirnafn hennar sem mörgum þykir neyðarlegt
Leikkonan Olivia Wilde var lögð í einelti í æsku fyrir sitt raunverulega eftirnafn – Cockburn – og ákvað því að taka upp eftirnafnið Wilde þegar hún g...
Milljón sóttu um dvalarleyfi á Spáni
📅 30.06.2026 👁️ 1
Milljón sóttu um dvalarleyfi á Spáni
Um ein milljón hefur sótt um dvalarleyfi á Spáni eftir að stjórnvöld þar kynntu áform um að veita óskráðum innflytjendum dvalarleyfi í landinu.Umsókna...
Milljón sótti um dvalarleyfi á Spáni
📅 30.06.2026 👁️ 1
Milljón sótti um dvalarleyfi á Spáni
Um ein milljón hefur sótt um dvalarleyfi á Spáni eftir að stjórnvöld þar kynntu áform um að veita óskráðum innflytjendum dvalarleyfi í landinu.Umsókna...
Stærsta kókaínmál Ís­lands­sögunnar og ráð­herra sakar starfs­menn Hvals um fífla­skap - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Stærsta kókaínmál Ís­lands­sögunnar og ráð­herra sakar starfs­menn Hvals um fífla­skap - Vísir
Þetta er annað stóra fíkniefnamálið á skömmum tíma en fyrr í mánuðinum var greint frá umfangsmiklu máli tengdu Norrænu. Lögreglan segir eftirspurnina ...
Lokaeinkunnirnar vís­bending um ósamræmda ein­kunna­gjöf - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Lokaeinkunnirnar vís­bending um ósamræmda ein­kunna­gjöf - Vísir
Í svari barna- og menntamálaráðuneytisins við fyrirspurn Sigríðar Á. Andersen, þingmanns Miðflokksins, um dreifingu einkunna kemur fram að hlutfall ne...
Komust á snoðir um kókaínsmyglið fyrir nokkrum vikum
📅 30.06.2026 👁️ 1
Komust á snoðir um kókaínsmyglið fyrir nokkrum vikum
Lögregla vinnur með Europol og lögreglu erlendis að rannsókn á stærðarinnar kókaínsmygli hingað til lands. Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþj...
Halldór Haraldsson píanóleikari er látinn
📅 30.06.2026 👁️ 1
Halldór Haraldsson píanóleikari er látinn
Halldór Haraldsson píanóleikari og fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík lést í gær, 89 ára gamall. Halldór á farsælan feril að baki og...
Enn stöðugt landris undir Svartsengi
📅 30.06.2026 👁️ 1
Enn stöðugt landris undir Svartsengi
Landris heldur áfram undir Svartsengi með stöðugum hraða og líklegasta sviðsmyndin er enn áframhaldandi kvikusöfnun sem endar með nýju kvikuhlaupi og ...
Sóttu slasaðan mann í Drangey
📅 30.06.2026 👁️ 1
Sóttu slasaðan mann í Drangey
Björgunarsveit á Sauðárkróki var kölluð út síðdegis í dag og sótti slasaða manneskju í Drangey í Skagafirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysav...
Komu slösuðum til bjargar í Drang­ey - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Komu slösuðum til bjargar í Drang­ey - Vísir
Í fréttatilkynningu frá Landsbjörgu segir að uppgangan í Drangey sé brött og erfið og því ekki hlaupið að því að flytja liggjandi sjúkling þá leið. Bj...
US Supreme Court upholds birthright citizenship in blow to Trump
📅 30.06.2026 👁️ 1
US Supreme Court upholds birthright citizenship in blow to Trump
The ruling is a major setback for Donald Trump's immigration agenda, and has been welcomed by civil rights groups.
Hundi bjargað á lífi úr húsarústum í Venesúela
📅 30.06.2026 👁️ 1
Hundi bjargað á lífi úr húsarústum í Venesúela
„Eftir fimm klukkustundir tókst okkur að bjarga þessum litla hundi sem svarar nafninu Giselle,“ skrifar Nayib Bukele, forseti El Salvador, við myndske...
Hall­dór Haralds­son er látinn - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Hall­dór Haralds­son er látinn - Vísir
Er þetta meðal þess sem fram kemur í andlátstilkynningu frá aðstandendum Halldórs en hann fæddist í Reykjavík þann 18. febrúar árið 1937. Þar er einni...
Flóknari aðdragandi en fyrir þingkosningar
📅 30.06.2026 👁️ 1
Flóknari aðdragandi en fyrir þingkosningar
Í nýjasta þjóðarpúlsi Gallups þar sem spurt var um atkvæðagreiðsluna í lok sumars kom fram að mjótt er á munum milli þeirra sem hallast að því að segj...
Fjarheilbrigðisþjónusta verði óháð búsetu
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fjarheilbrigðisþjónusta verði óháð búsetu
Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að móta stefnu í fjarheilbrigðisþjónustu hefur skilað ráðherra skýrslu með tillögum sínum. Hópurinn leggur áhe...
Cruise passengers 'stranded' after air con failure to be flown home
📅 30.06.2026 👁️ 1
Cruise passengers 'stranded' after air con failure to be flown home
Tui has apologised and told passengers it has arranged flights home for tomorrow and a full refund.
Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni - Vísir
Þrír Íslendingar og sex erlendir ríkisborgarar eru í haldi lögreglunnar vegna innflutnings á rúmlega hundrað kílóum af fíkniefnum sem voru flutt sjóle...