Dánaraðstoð kemst að líkindum aftur á dagskrá breska þingsins.
Þingkona Verkamannaflokksins hefur greint frá því að hún ætli að nota svigrúm sitt til að leggja fram þingmannafrumvarp þess efnis.
Rétt eins og á Íslandi eiga frumvörp sem óbreyttir þingmenn leggja fram yfirleitt ekki mikla möguleika á að fá þinglega meðferð. Á breska þinginu er hins vegar hið óvenjulega fyrirkomulag við lýði að árlega er dregið um nokkra heppna þingmenn. Þeir fá að leggja fram frumvarp sem fær forgang umfram önnur þingmannafrumvörp.
Ein þeirra sem hrepptu hnossið í ár er Lauren Edwards, þingkona Verkamannaflokksins. Hún hefur gefið það út að hún muni leggja fram frumvarp um dánaraðstoð.
Ár er liðið síðan neðri deild breska þingsins samþykkti frumvarp um dánaraðstoð. Það varð hins vegar ekki að lögum eftir að það dagaði uppi í lávarðadeildinni – efri deild breska þingsins – án þess að komast til atkvæðagreiðslu.
Nú er hugsanlegt að ákvæði í þingskaparlögum, sem gerir neðri deildinni kleift að samþykkja lög án aðkomu lávarðadeildarinnar, verði beitt. Forsenda þess er að þingið samþykki sama frumvarpið í tvígang.
Þingkonan Lauren Edwards er fædd í Viktoríuríki í Ástralíu, sem var fyrsta ríkið þar í landi til að heimila dánaraðstoð.
Fyrr á árinu hafnaði skoska þingið í Holyrood frumvarpi um að lögleiða dánaraðstoð.