Daði og fjölskylda á ferð um landið

Hjónin Daði Freyr Pétursson og Árný Fjóla Ásmundsdóttir sýna frá hringferð um landið á húsbíl í skemmtilegu myndbandi með tveimur dætrum þeirra. Þar lýsa þau tíu daga ferðalagi um Austur- og Norðurland þar sem einkum var horft til þess hve vel íslenskir ferðaþjónustuinnviðir mæta þörfum barnafólks. Hjónin ferðuðust alls 1.973 kílómetra á bifreið frá bílaleigunni Höldur, en að sögn fjölskyldunnar tryggði farartækið áfallalaust og þægilegt ferðalag þrátt fyrir krefjandi aðstæður með tvö börn.
Leiðin lá fyrst á suðausturhornið þar sem dvalið var á tjaldstæðinu í Svínafelli. Þaðan var haldið á Austurland, með viðkomu á Egilsstöðum og á Vopnafirði, en þar hélt Daða Freyr tónleika..
Ferðalaginu var svo haldið um Norðausturland þar sem náttúruperlur á borð við Ásbyrgi og Dettifoss voru heimsóttar, auk þess sem slakað var á í Jarðböðunum við Mývatn. Þá var dvalið á Mánárbakka á Tjörnesi þar sem byggðasafnið á staðnum var skoðað.
Sérstök áhersla var lögð á fjölbreytta afþreyingu á Húsavík og heimsótti fjölskyldan Evróvisjón-safnið í Jaju húsinu, fór í hvalaskoðun með Friends of Moby Dick og sótti sjóböðin GeoSea. Ferðinni lauk svo á Akureyri þar sem Daði Freyr var með aðra tónleika á kaffihúsinu LYST í Lystigarðinum.
Að sögn fjölskyldunnar sýnir ferðin að húsbílaformið hentar afar vel til að kanna landshlutana í næði, jafnvel með yngri kynslóðina innanborðs.